Gjáin milli Bandaríkjanna og ESB verður augljósari með hverjum deginum. Í fyrri viku fór leikarinn Zelenský í eina leikferðina enn til hinna miklu leiðtoga viljugu þjóðanna. Hann kom til London eftir að hafa skrifað undir blautan draum með sænska forsætisráðherranum um að kaupa 100-150 herþotur Gripen frá SAAB. Greiðslan: Stolið fé af rússneskum fyrirtækjum og athafnamönnum. Núna fékk Starmer, forsætisráðherra Breta tækifæri að leika herforingja hinna viljugu þjóða ESB sem ætla að sýna Pútín hvar skápurinn á að standa.
Á fundinum í London s.l. föstudag voru einnig Mark Rutte, aðalritari Nató, Mette Fredriksen, forsætisráðherra Danmerkur og forsætisráðherra Hollands, Dick Schoof. Ráðherrarnir eru með í „bandalagi þeirra viljugu“ sem samanstendur af um 30 eiðsvörnum löndum sem gengið hafa saman um að líta á stríðið í Úkraínu sem sitt eigið stríð. Flest öll lönd ESB eru með, Bandaríkin eru fyrir utan, Trump er að reyna að koma á friði sem hinir viljugu vilja ekki heyra minnst á.
Starmer kynnti áætlun þeirra viljugu sem hafa „sameinast um að ganga lengra en nokkru sinni áður til að auka þrýstinginn á Pútín.“ Starmer tilkynnti fimm liða áætlun sem á að tryggja Vesturlöndum sigurinn í Úkraínu. Nýjum refsiaðgerðum skal beitt gegn löndum sem kaupa rússneska olíu og gas. Gera á upptækar rússneskar eigur í bönkum Vesturlanda. Starmer segir að Rússland „verði að greiða fyrir eyðilegginguna í Úkraínu.“ Liðir þrjú og fjögur í áætlun þeirra viljugu fjallar um enn frekari vopnasendingar til Úkraínu til að „halda upp hernaðarþrýstingnum á Pútín.“
Bretar munu senda langdrægar eldflaugar sem skjóta má á mörk langt inni í Rússlandi. Fimmti og síðasti liðurinn fjallar um „alþjóða her“ sem senda á til Úkraínu til að „tryggja langvarandi frið vegna þess að framtíð Úkraínu er framtíð okkar!“
Tveimur dögum eftir yfirlýsingar þeirra viljugu í London fullyrðir herforingi Rússlands, Valerij Gerasimov, að Rússar hafi króað af 31 úkraínskar herdeildir í Úkraínu. Rætt er um allt að fimm þúsund hermenn á Kupjansk og fimm þúsund og fimm hundruð hermenn í Pokrovsk, sem eru umkringdir og einangraðir.
Fimm liða áætlun þeirra viljugu:
- Losna við rússneska olíu og gas frá heimsmörkuðum meðal annars með refsiaðgerðum gegn þeim sem versla við Rússland
- Halda áfram að stela eigum Rússa á Vesturlöndum og nota peninginn til að fjármagna varnir Úkraínu
- Efla loftvarnir Úkraínu með þúsundum léttra eldflauga, Martlet
- Setja hernaðarlegan þrýsting á Pútín með langdrægum eldflaugum sem skjóta má langt inn í Rússland
- Senda alþjóðlegan her til að tryggja frið
