Þannig lítur innrás út

Nýtt myndband fer um allt á samfélagsmiðlum sem sýnir flæði ólöglegra innflytjenda til Evrópu 2008 – 2024

Fjöldi innflytjenda í aðildarríkjum ESB fór upp í 64 milljónir ár 2025. Tölurnar eru sóttar í skýrslu sem var birt á miðvikudaginn af Rannsóknar- og skilgreiningarmiðstöð innflytjenda RFBerlín.

64,2 milljónir er aukning um 2,1 milljón frá því árinu á undan. Talan hefur hækkað mjög hratt, árið 2010 var hún 40 milljónir. Hér að neðan er kort sem núna fer um allt á samfélagsmiðlum í Evrópu. Hver svartur punktur táknar 100 innflytjendur. Þannig lítur innrás út:

Tommaso Frattini, einn höfundur skýrslunnar segir:

„Þýskaland er enn aðal endastöð fyrir innflytjendur í Evrópu, bæði hvað snertir fjöldann og einnig fjöldi samanborið við innfædda.“

Hælisumsóknir beindust að ákveðnum löndum þar sem Spánn, Ítalía, Frakkland og Þýskaland stóðu fyrir næstum þremur fjórðu allra umsókna. Þýskaland tók árið 2025 á móti stærstum fjölda hælisleitenda í heild sinni eða 2,7 milljónir manns.

Flestar hælisumsóknir í Þýskalandi koma frá Afghanistan og Sýrlandi og eru um 42% af öllum hælisumsóknum. Næst á eftir kemur Tyrkland með um 11%. Spánn sýnir enn meiri samþjöppun: Venesúelamenn standa fyrir um 60% umsókna á meðan Malí er um 11%. Svíþjóðardemókratinn Richard Jomshof segir að flæði flóttamanna minnki ekki neitt og haldi áfram af fullum krafti.