Tólf ára gamall drengur er grunaður um að hafa skotið 21 árs gamlan mann til bana í Malmö. Þar sem drengurinn er ekki lögráða hafa félagsmálayfirvöld tekið hann í sína umsjá. „Ég veit ekki til þess að neitt morð hafi verið framið af svo ungum dreng áður” segir Manne Gerell, dósent í afbrotafræði, við Sydsvenskan.
Skotárásin átti sér stað um klukkan 22:30 föstudagskvöldið 12. desember.
Tuttugu og eins árs gamall maður var með vinum sínum í Audi bíl sem ók eftir Galgebacksvägen í Oxie, Malmö. Hann sat í aftursætinu. Þá hófst skotárás með kúlnahríð og fór að minnsta kosti ein kúlan inn í bílinn og hitti manninn. Enginn annar í bílnum særðist.
Rasem Chebil, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar í Malmö, er skelfingu lostinn yfir skotárásinni og bendir á að ofbeldið færist sífellt neðar í aldurshópana. Hann segir við Sydsvenskan:
„Maður verður hræddur, á hvaða leið erum við? Hvernig er hægt að nota svona ungt fólk?”
Maðurinn var fluttur á sjúkrahús en ekki var hægt að bjarga lífi hans. Rannsókn á morðinu leiddi til hins grunaða 12 ára drengs, sem samkvæmt Sydsvenskan býr ekki í Malmö en er grunaður um að hafa verið sendur þangað til að fremja verknaðinn.
Á undanförnum árum hafa börn og unglingar í auknum mæli verið ráðin í gegnum samfélagsmiðla til að fremja alvarlega ofbeldisglæpi í Svíþjóð eins og skotárásir og sprengingar. Loforðum um peninga fylgja oft hótanir og mikill þrýstingur.
Saksóknarinn Caroline Carlquist hefur ákveðið að hefja svokallaða LUL-31 rannsókn, sem varðar börn sem grunuð eru um alvarlega glæpi. Tilgangurinn er að skýra hvort barnið sé sekt, sem verður lagt til grundvallar fyrir áframhaldandi starf félagsþjónustunnar.
