Zelensky þakkar Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, fyrir alla milljarðana sem ríkisstjórnin hefur tekið af vinnandi fólki í Svíþjóð til að henda í morðvélina í Úkraínu.
Þúsundir milljarðar af þeim stríðspeningum sem Úkraína hefur fengið hafa horfið í þá botnlausu spillingu sem ríkir í landinu. Samt sem áður heldur sænska ríkisstjórnin áfram að hrifsa skattfé landsmanna til að senda til Úkraínu. Núna tilkynnir sænska stjórnin enn einn borgaralegan stuðningspakka til stjórnmálamanna í Kænugarði – að verðmæti yfir 1,1 milljarð sænskra króna.
Sagt er að nýi pakkinn sé fyrir orkumálin en einmitt í orkubransanum hafa stærstu hneykslismálin komið upp í Úkraínu.
Sænska ríkisstjórnin segir peningasendinguna vera svar við brýnum þörfum vetrarins. Samkvæmt fréttatilkynningunni munu peningarnir fara í orkuöflun, viðgerðir, innviði, umbótavinnu og heilbrigðisþjónustu. Orkumálaráðherra Svía, Ebba Busch, segir í fréttatilkynningu:
„Við aukum núna stuðning við orkuöflun Úkraínu í samstarfi við alþjóðlega samstarfsaðila. Þetta styrkir ekki aðeins seiglu Úkraínu heldur einnig varnir allrar Evrópu.”
Nýi milljarðapakkinn frá Svíþjóð kemur samtímis og nánustu ráðgjafar forsetans flýja land með stórar fjárfúlgur sem vakið hefur alþjóða athygli.
Frá febrúar 2022 hefur Svíþjóð sent samtals um það bil 109 milljarða sænskra skattkróna til Úkraínu sem er um 1,5 billjónir íslenskra króna.
