Einn af skríbentum Expressen í Svíþjóð, Patrik Kronqvist, segir ákvörðun Donald Trumps, Bandaríkjaforseta að skilgreina Múslímabræðralagið sem hryðjuverkasamtök, hafa afleiðingar fyrir Svíþjóð og að Svíar verði að gera upp við íslamavæðinguna sem átt hefur sér stað í Svíþjóð undanfarna áratugi. Þar sem að íslensk yfirvöld herma allt eftir Svíum, sama hversu vitlaust það er, þá er ekki úr vegi að Íslendingar hugi að þessum orðum Patriks.
Patrik skrifar að árið 1999 gerðu sósíaldemókratísku samtökin Trú og samstaða samning við Múslímaráðið í Svíþjóð. Var múslímum lofað að samtökin sæju um að fá fleiri múslíma með á framboðslista sósíaldemókrata til þings og bæjarfélaga ásamt því að greiða fyrir föstudagsbænum múslíma á vinnustöðum og setja lög um helgidaga múslíma. Patrik skrifar:
„Á þeim tíma var ráðið undir forystu manns sem barðist meðal annars fyrir Sharia-lögum fyrir múslíma í Svíþjóð. Samningurinn er augljósasta dæmið um hvernig sænskir stjórnmálaflokkar hafa unnið með íslamistum. En hann er langt frá því að vera sá eini. Til dæmis gáfu Móderatar formanni Íslamska bandalagsins sæti í varnarmálanefnd þingsins árið 2010.“
Íslamisminn í Svíþjóð hefur verið árangursríkur í starfi ýmissa félagasamtaka. Fjöldi samtaka með náin bönd við Múslímabræðralagið eins og til dæmis námssamtökin Ibn Rushd og Ungir múslímar í Svíþjóð hafa fengið háa ríkisstyrki. Íslamska bandalagið hefur náð að vera talinn fulltrúi fyrir alla múslíma í Svíþjóð. Hefur þessi þróun gengið svo langt að vakið hefur athygli langt út fyrir landamæri Svíþjóðar. Franska ríkisstjórnin birti skýrslu í vor um áhrif Múslímska bræðralagsins í Evrópu og því er slegið föstu að „Svíþjóð sé heimavöllur fyrir virkan hluta hreyfingarinnar.“ Er það skýrt með:
„…miklu umburðarlyndi gagnvart sænskri fjölmenningarhyggju og góðum samskiptum hreyfingarinnar og stjórnmálaflokka á staðnum, sérstaklega sænska Jafnaðarmannaflokksins.“
Trump hefur ákveðið að flokka útibú Múslímabræðralagsins í Jórdaníu, Líbanon og Egyptalandi sem hryðjuverkamenn. Það hefur vissulega engin bein lagaleg áhrif á útibú hryðjuverkasamtakanna í Svíþjóð. En ákvörðun Bandaríkjanna gæti í reynd orðið alþjóðlegur staðall. Christer Sfeir, sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda, skrifar á ritstjórnarsíðu Sænska dagblaðsins nýlega:
„Sænskir bankar munu af hreinni sjálfsbjargarviðleitni byrja að frysta reikninga, stöðva millifærslur og krefjast nákvæms rekjanleika frá samtökum sem talin eru vera undir áhrifum Múslímabræðralagsins. Það skiptir ekki máli, hvað sænskir stjórnmálamenn halda, bandarísk fjármálalöggjöf mun taka gildi þegar í stað,.“
Það er kaldhæðnislegt að samtök þeirra hafa oft fengið opinbert fjármagn til aðlögunarverkefna frá velviljuðum Svíum.
Hann spáði einnig að öryggisþjónustan myndi grandskoða umhverfið í kringum Múslímabræðralagið, að utanríkisstefna Svíþjóðar muni færast nær sjónarmiði Bandaríkjanna og að sænskir íslamistar yrðu gagnrýndir harðar en áður í umræðunni. Það yrði velgjörningur fyrir Svía.
Á undanförnum árum hefur fjárveiting vissulega dregist saman í Svíþjóð. Bæði Ibn Rushd og Ungir múslimar í Svíþjóð hafa lokað starfseminni eftir að ríkið hætti styrkjaveitingu. Fjölda sjálfstæðra múslímskra skóla hefur verið lokað eftir skattsvik og óreiðu. Ríkisstjórnin brást einnig hratt við frönsku skýrslunni og hefur skipað sérfræðingahóp til að komast til botns í áhrifum Múslímabræðralagsins í Svíþjóð.
Það er mjög auðvelt að vera íslamisti til dæmis í borgaralegum samtökum eins og Björgum börnunum og skapa sér starfsferil. Múslímabræðralagið stjórnar stærstu moskunum í Stokkhólmi og Gautaborg – sem og löngum lista af moskum út um allt land. Og Sida gefur enn háar fjárhæðir til íslamskra hjálparsamtaka sem eru nátengd hryðjuverkasamtökunum.
Í sænsku samhengi er mesta hættan á hliðarsamfélögum sem hryðjuverkasamtökin vinna að til að tryggja að múslimar búi í með litlum samskiptum við meirihluta íbúanna og fylgi sharíalögum. Það er kaldhæðni örlaganna að samtök þeirra hafa oft fengið opinbert fé til aðlögunarverkefna frá bláeygðum Svíum.
Önnur ógn beinist að gyðingum. Á 20. öldinni hefur Múslímabræðralagið verið lykill í útbreiðslu gyðingahaturs. Rannsakendur tala jafnvel um gyðingahatur sem grunn að öllu íslam. Ekki síst ógna hryðjuverkasamtökin frelsi almennra múslima í Svíþjóð. Allt of margir horfa enn fram hjá þessu – sérstaklega á vinstri vængnum og verja hryðjuverkasamtökin og segja gagnrýni einungis vera kynþáttafordóma gegn múslimum. Fv. þingmaður sjósíaldemókrata, Nalin Baksi sem sjálf er múslímsk er þessu ósammála:
„Þessi fáfróði og barnalegi hluti vinstri manna er blekktur af íslamistum sem saka alla sem spyrja þá spurninga um að vera íslamafóbískir. Þeir eru að reyna að skilja íslamistana að því marki að þeir eru tilbúnir að neita sænskum múslimum um réttindi sem þeir telja sjálfsögð fyrir sig, eins og að geta tjáð skoðanir sínar frjálslega eða að geta klætt sig eins og þeir vilja.“
Íslendingar ættu að fylgjast vel með þróuninni í Svíþjóð sem margir segja að sé hryllingsdæmi öðrum til viðvörunar.
