Svissneskir kjósendur munu kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslu í júní um tillögu um að setja 10 milljóna manna hámark á íbúafjölda landsins. Ef íbúafjöldinn fer yfir 9,5 milljónir á að takmarka innflytjendur til landsins.
Svissneska þjóðarflokknum, SVP, sem er stærsti flokkur landsins hefur safnað tilskildum undirskriftum til að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðslu um það í júní, hvort setja eigi 10 milljón manna þak á íbúafjölda landsins.
Samkvæmt tillögunni má íbúafjöldinn ekki fara yfir tíu milljónir fyrir árið 2050, skrifa Dagens PS og Financial Times. Gripið verður til aðgerða um leið og íbúafjöldinn fer yfir 9,5 milljónir, með því að takmarka hælisleitendur og fjölskylduinnflytjendur.
Íbúar Sviss eru núna um 9,1 milljón íbúa. Af þeim eru 27% erlendir ríkisborgarar. Íbúafjöldinn hefur vaxið verulega frá árinu 2000.
SVP segir í yfirlýsingu:
„Eftir aðstreymi rúmlega 180.000 innflytjenda á einu ári, þá verður á endanum að grípa til aðgerða.“
Andstæðingar vara við því að verði tillagan samþykkt, þá gætu samningar um frjálsa för innan ESB verið í hættu. Jafnframt að afleiðingarnar hefðu neikvæðar afleiðingar fyrir efnahagskerfið. Bæði ríkisstjórnin og þingið ráðleggja kjósendum að kjósa nei.
Skoðanakannanir benda til þess að úrslitin séu óviss.
