Þegar utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, steig á sviðið á öryggisráðstefnunni í München, stóð hann andspænis forsetum, forsætisráðherrum, ráðherrum og öðrum valdamiklum einstaklingum frá mörgum heimshlutum en fyrst og fremst frá Evrópu.
Í fyrra hneykslaði varaforseti Bandaríkjanna, J.D. Vance, valdhafa í Evrópu með beinskeyttri gagnrýni á evrópskar ríkisstjórnir. Gagnrýndi hann þær fyrir að hunsa vilja almennings, kollvarpa niðurstöðum lýðræðislegra kosninga, ritskoða stjórnmálaandstæðinga og grípa ekki til aðgerða til að stöðva ólöglega innflytjendur.
Ræða J.D. Vance olli hörðum viðbrögðum meðal þátttakenda á alþjóðaráðstefnunni vegna gagnrýni á ESB. Rubio vísaði sjálfur í þá ræðu og sagði að hreinskilni Vance í ræðunni byggðist á þeirri staðreynd að Bandaríkjunum væri annt um Evrópu.
Í ár valdi utanríkisráðherrann Rubio sameinandi nálgun, hrósaði Evrópu en fléttaði hana inn með skýrum skilaboðum og kröfum frá stjórn Trumps. Hvíta húsið vill sjá breytingar í ESB.
Rubio málaði mynd af Evrópu í rústum eftir seinni heimsstyrjöldina og lagði áherslu á lykilhlutverk Nató í endurreisninni. Samstarf Bandaríkjanna og Evrópu leiddi að lokum til falls Berlínarmúrsins – augnablik sem hann lýsti sem lækningu siðmenningarinnar.
Barnalegt með „reglubundnni heimsskipan“
Að sögn Rubio skapaði sigurinn yfir kommúnismanum oftraust á kraft frjálslyndrar heimsskipunar. Sú hugmynd að viðskipti og reglubundin heimsskipan myndu sjálfkrafa ryðja brautina fyrir frjálslynt lýðræði reyndist röng.
Hann kallaði trúna á reglubundna heimsskiuan „barnalega hugmynd“ og sagði að eftir lok kalda stríðsins hefðu Vesturlönd ímyndað sér að tími styrjalda væri liðinn og framtíðin yrði sjálfkrafa undir stjórn frjálslyndra lýðræðisríkja. Það væri misskilningur sem hefur kostað Vesturlönd dýrt að hans mati.
Í ræðu sinni vísaði Rubio ítrekað til þess sem hann kallaði sameiginlega vestræna sjálfsmynd og minnti á að Bandaríkin eiga rætur að rekja til Evrópu. Hann lagði ítrekað áherslu á tengslin handan Atlantshafsins og að örlög Evrópu muni alltaf skipta máli fyrir Bandaríkin sem vilja að Evrópa sé sterk og sjálfstæð:
„Við erum hluti af sömu siðmenningu, vestrænni siðmenningu. Bandaríkin og Evrópa eiga saman. Örlög okkar verða alltaf samofin ykkar.“
Fjöldainnflytjendamál ógna vestrænum heimi
En í ræðu Rubio kom einnig fram hörð gagnrýni á stjórnmálamenn í ESB. Rubio lýsti því hvernig Evrópa hefur lengi verið opin fyrir fjöldainnflytjendum. Hann talaði um „fordæmalausa bylgju fjöldainnflutnings.“
„Í leit að heimi án landamæra opnuðum við landamærin fyrir fordæmalausri bylgju fjöldainnflytjenda sem ógnar samheldni samfélaga okkar, menningarlegri samfellu og framtíð almennings. Við gerðum þessi mistök saman og núna skuldum við borgurum okkar að horfast saman í augu þessarra staðreynda og halda áfram endurbyggingu.“
Hann benti á fjöldainnflutning sem ógn við hinn vestræna heim:
„Fjöldainnflutningurinn er bráð ógn við uppbyggingu samfélaga okkar og framtíð siðmenningar vorrar.“
Rubio tengdi einnig hnattvæðingu og afiðnaðarvæðingu við minnkað vald þjóðarinnar. Hann lýsti alþjóðaþróuninni sem „útvistun fullveldis okkar.“ Að hans sögn hafa lönd á Vesturlöndum misst áhrif á eigin efnahagshagkerfi. Loftslagsstefnan á Vesturlöndum var einnig gagnrýnd harðlega. Rubio sagði að hún hefði verið „nýtt af óvinum“ sem sjálfir héldu áfram að nota olíu og gætu þannig notið efnahagslegs ávinnings á sama tíma og Vesturlönd hafa veikst vegna fjöldasturlunar grænu umskiptanna.
