ESB-þingkonan Christine Anderson fullyrðir að Covid-faraldurinn hafi verið „próf“ til að sjá hversu mikið væri hægt að kúga og stjórna almenningi og hvernig takast á við svipaða atburði í framtíðinni.
ESB-þingkonan Christine Anderson frá Evrópusambandinu ræðir um „heimsfaraldurinn“ við Wide Awake Media (sjá X að neðan). Hún segir:
„Flestir létu stjórna sér, gaslýsa, til að samþykkja allar þessar fáránlegu takmarkanir. Flestar takmarkanirnar voru svo fáránlegar. Þær voru algjörlega órökréttar.“
Stjórnmálamenn og valdhafar blekktu almenning og hræddu. Svo hvers vegna voru þessar undarlegu, tilgangslausu takmarkanir kynntar? Anderson útskýrir:
„Þetta var próf til að finna út, hvernig hægt væri að fá fólkið til að hlýða og til að sjá hversu langt væri hægt að komast áður en fólkið byrjaði að veita mótspyrnu. Það var það sem þau voru að reyna að komast að.
Þetta var prófsteinn til að sjá hvað þyrfti að gera til að neyða fólk til að hlýðni.
Samkvæmt Anderson var meiningin að gera það sama með svínaflensunni árið 2009 en það virkaði ekki því ekki var skilningur fyrir því á þeim tíma að það þyrftu að blanda fjölmiðlum í málið. En með Covid voru fjölmiðlarnir með á nótunum. Og það sama sást í öllum vestrænum löndum.
„Allir lásu sama handritið. Allir! Það var „verið heima“ – „enginn er öruggur fyrr en allir eru öruggir“ – „byggið upp betur.“ Allt saman. Allir sögðu nákvæmlega sömu lygarnar.
Það er hægt að gera margt til að reyna að sannfæra mig um að þetta hafi ekki verið skipulagt þegar þetta mynstur kemur í ljós, það mun ég aldrei sannfærast.“
