Í vikunni samþykkti ESB-þingið ályktun sem viðurkennir transkonur sem alvöru konur innan ramma vókaðrar jafnréttisstefnu ESB. Meirihluti þingmanna telja einnig að aðrir en konur geti orðið barnshafandi.
Jafnréttispakkinn var samþykktur á fimmtudag með 340 atkvæðum, 141 á móti og 68 sátu hjá. Pakkinn er hluti af forgangsverkefni ESB fyrir komandi fund kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York í mars.
Samkvæmt pakkanum krefst ESB-þingið „fullrar viðurkenningar á transkonum sem konum“ innan ramma forgangsverkefnis ESB fyrir réttindum kvenna og jafnrétti kynjanna á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Í textanum er einnig vísað til aðgangs að þjónustu sem miðar að því að vernda konur gegn ofbeldi eins og kvennaskjólum.

Viðurkenning trans kvenna var hluti af víðtækari ályktun sem fjallaði um mörg forgangsverkefni í jafnréttismálum. Var greitt atkvæði um kvenréttindapakkann í heild sinni. Þingmenn frá mörgum stjórnmálaflokkum greiddu atkvæði gegn ályktuninni og héldu því fram að „flokkurinn kona“ sé verndaður í alþjóðasamningum.
Ályktunin er ekki lagalega bindandi fyrir aðildarríki ESB heldur lýsir hún frekar afstöðu ESB-þingsins til ESB-ráðsins, þegar það kemur fram fyrir hönd ESB á alþjóðavettvangi. Í samþykktinni er fjallað um kerfisbundinn mismun, meintan kynbundinn launamun og kynbundið ofbeldi.
Fleiri en konur geta orðið barnshafandi
Þá var einnig kosið um hvort einungis líffræðilegar konur geti orðið barnshafandi: 200 töldu að einungis líffræðilegar konur geti orðið barnshafandi en lutu í lægra haldi fyrir þeim 233 sem töldu að aðrir en konur gætu orðið barnshafandi.
