Andrew Montford, ritstjóri Net Zero Watch, segir í viðtali við breska GB News (sjá X að neðan) „að til þess að lækka rafmagnskostnaðinn, þá verðum við að fara að loka vindmyllugörðum.“
Andrew Montford, sem stýrir Net Zero Watch, talar um nettó-núll og hátt orkuverð.
Samkvæmt GB News gætu Bretar fengið hærri rafmagnskostnað en það sem nemur fjárframlögum til Úkraínustríðiðsins.
Montford útskýrir að það að hið stóra vandamál sé vindorkan. Hún bætir við varanlegum kostnaði á raforkukerfið.
„Stóra vandamálið hér við rafmagnið eru allir þessir vindmyllugarðar sem valda vandanum. Þær bæta svo miklum kostnaði við raforkukerfið. Þetta er fastur kostnaður. Hann hverfur ekki, þótt þú notar ekki rafmagnið. Kostnaðurinn verður áfram þarna. Við verðum að gera eitthvað í kostnaðinum við raforkukerfið. Eina leiðin til að lækka kostnaðinn, lækka rafmagnsreikningana, er að loka vindmyllugörðunum. Svo alvarlegt er það. Við erum í mjög, mjög erfiðri stöðu.“
