Rupert Lowe stofnar nýjan flokk til að takast á við innflytjendavandann í Englandi

Þingmaðurinn Rupert Lowe sem er þingmaður í neðri deild breska þingsins og var áður þingmaður Umbótaflokks Nigel Farage, hefur stofnað sinn eigin flokk: Restore (Endurreisnin). Flokkurinn berst fyrir víðtækri stefnu í innflytjendamálum meðal annars að senda ólöglega innflytjendur úr landi. Flokkurinn gengur lengra en Umbótaflokkurinn og gagnrýnir Lowe flokk Nigel Farage fyrir að ganga ekki nógu langt.

Lowe og nýstofnaði flokkur hans, Restore, hafa notið stuðnings frá ýmsum þekktum evrópskum áhrifavöldum sem mæla fyrir brottvísun hælisleitenda. Meðal annarra hafa Martin Sellner og Eva Vlaardingerbroek lýst yfir stuðningi við Lowe (sjá X að neðan) eftir að hann og flokkur hans gerðu stefnumálin ljós. Lowe sagði í neðri deild breska þingsins að milljónum ólöglegra og löglegra innflytjenda sem hvorki starfa né aðlagast eða virða bresku þjóðina verði að vísa úr landi (sjá Youtube að neðan).

Rupert Lowe greinir frá stofnun Flokksins og stefnu í innflytjendamálum á breska þinginu.

Könnun sem Find Out Now gerði á vegum Restore sýnir að flokkurinn hefur þegar um 10% fylgi. Umbótaflokkurinn undir leiðsögn Nigels Farage mælist stærsti flokkurinn með 25%. Verkamannaflokkurinn (systurflokkur Samfylkingarinnar) fær 16% í könnuninni og Íhaldsflokkurinn 13%. Græningjaflokkurinn mælist með 18% fylgi og Frjálslyndir demókratar 13%.

Bylgja brottvrekstrar ólöglegra innflytjenda rís í Evrópu og vex sífellt ásmegin. Rótgrónasti flokkurinn í Evrópu sem hlynntur er víðtækri heimsendingu ólöglegra innflytjenda er FPÖ í Austurríki. Flokkurinn er langstærsti flokkurinn með 35% fylgi sem sveiflast á milli 35 -37% samkvæmt samantekt Politico.

Í Danmörku styður meirihluti stjórnmálaflokkanna aukna brottvísun hælisleitenda úr landi. Forsætisráðherra Danmerkur, Mette Frederiksen, hefur lýst því yfir að Danmörk muni og ganga lengra en fyrirskrift ESB leyfir til þess að geta vísað óæskilegum innflytjendum úr landi. Í Póllandi stöðvaði ríkisstjórnin móttöku hælisleitenda til landsins í fyrra samkvæmt BBC.