Svíar undirbúa sig fyrir stríð – Almannavarnir verða Borgaralegar hervarnir

Mikael Frisell til vinstri greinir frá hernaðarlegum undirbúningi Almannavarna Svíþjóðar

Sænsku almannavarnir skipta um áherslu og nafn. Frá Samfélagsvernd og forvörnum verður aðaláherslan lögð á borgaralegar varnir í stríði. Myndigheten för samhällsskydd och beredskap verður Myndigheten för civilt försvar. Mikael Frisell forstjóri stofnunarinnar segir að „núna einbeitum við okkur meira að því að undirbúa samfélagið fyrir stríð.“

TV4 greinir frá því að 1. janúar 2026 verður MSB að MCF með áherslu á borgaralega varnir í stríði. Stofnunin mun hafa skýrari verkefni og skýrara umboð. Mikael Frisell forstjóri stofnunarinnar sagði á blaðamannafundi um breytinguna:

„Verkefnið verður erfiðara fyrir okkur og við verðum leiðandi leiðbeinandi og samhæfandi stofnun í öllum borgaralegum hervörnum.“

Kröfur stríðsins

Hann hikar ekki við að nota orðið stríð og leggur áherslu á að það eru kröfur stríðsins sem setja grunninn að starfi stofnunarinnar. Það er hefð sem Svíþjóð hefur haft frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar.

„Við tölum um ástandið eins og það er. Við teljum að það sé betra fyrir meðborgarana að hafa tilfinningu fyrir því hversu alvarleg staðan er. Og að ég sem borgari geti gert minn hlut til undirbúnings fjölskyldunnar og vinnustaðarins.

Við göngum út frá verstu mögulegri atburðarás – stríði. Við tökumst líka á við kreppur í hinu daglega lífi. Við þurfum að horfa til mikils, erfiðs og flókins álags á samfélagið.“

Stofnunin gegnir mikilvægu hlutverki í viðbættri skylduþjónustu, þar sem þegar verður hægt að taka ungt fólk á næsta ári í þjálfun fyrst og fremst í bláljósastörfum.

Annað mikilvægt skref er skipulag sem hefur verið þróað til verndar almennra borgara – hið fyrsta sem gert hefur verið síðan á tíunda áratugnum. 128 sveitarfélög í Svíþjóð hafa verið skilgreind sem sveitarfélög með meiri hættu á hernaðarlegri árás.

Áfram á fullri ferð

Með nafnabreytingunni fylgir fylgir nýtt merki með skjaldarmerki.

Mikael Frisell leggur áherslu á að vinnan við að byggja upp viðbúnað gangi hratt:

„Það er gott að við höfum aukið hraðann en borið saman við hið alvarlega ástand í heiminum, þá erum við ekki enn kominn á þann stað sem við þurfum að vera.“

Sjá meira hér

Fara efst á síðu