Hann kallar Breta hunda og apa, segist hata hvítt fólk og hvetur til handahófskenndra drápa á hvítum. Þetta er maðurinn sem breska ríkisstjórnin fékk lausan úr egypsku fangelsi og flaug til Bretlands annandag jóla. Keir Starmer, forsætisráðherra, fagnaði endurkomu Alaa Abd El-Fattah til Bretlands. Á sama tíma eru stjórnmálaandstæðingar hundeltir fyrir skoðanir sínar og fangelsaðir í stórum stíl.
Alaa Abd El-Fattah er egypskur aðgerðasinni sem hatar hvíta, hótar ofbeldi og kallar Breta „hunda og apa.“ Þrátt fyrir ofbeldisfullar yfirlýsingar fulla af kynþáttafordómum, þá tekur breska ríkisstjórnin á móti honum með opnum örmum. Það hefur vakið harða gagnrýni og margir velta því fyrir sér hvers konar maður hann er sem forsætisráðherrann er að verja, að því er Daily Mail greinir frá.
El-Fattah, sem fæddist og ólst upp í Egyptalandi, varð alþjóðlegt nafn arabíska vorið 2011 þegar hann tók þátt í mótmælum gegn Mubarak forseta. Hann var dæmdur í fimm ára fangelsi ár 2021 en náðaður í september 2025. Hann hefur haft breskt ríkisfang frá árinu 2022, þar sem móðir hans fæddist í Bretlandi. Hann var fluttur með flugi til Bretlands á annandag jóla í ár.
Starmer „himinlifandi“
Þegar El-Fattah sneri aftur til Bretlands skrifaði Keir Starmer, forsætisráðherra, á X:
„Ég er himinlifandi að Alaa Abd El-Fattah sé kominn aftur til Bretlands og sameinast ástvinum sínum.“
Starmer sagði málið vera „forgangsverkefni“ fyrir stjórnvöld. Yfirlýsing hans hefur meðal annars mætt harðri gagnrýni frá íhaldsflokknum og Reform UK.
Færslur El-Fattah á samfélagsmiðlum hafa orðið heitt umræðuefni. Hann hefur meðal annars skrifað:
„Ég er rasisti, mér líkar ekki hvítt fólk, svo farið þið til helvítis.“
„Handahófskenndar skotárásir á hvíta menn ætti að sannfæra þá um að rasismi kostar mannslíf.“
„Lögreglumenn eru ekki menn, þeir hafa engin réttindi, við ættum bara að drepa þá alla.“
Hann hefur ítrekað lýst Bretum sem „hundum og öpum“, kallar bresku söguna „lygi“ og í óeirðunum í London árið 2011 kallaði hann eftir meira ofbeldi:
„Farið og brennið borgina eða Downingstræti eða eltið lögregluna uppi, fávitarnir ykkar.“
Hann er Gyðingahatari og hefur skrifað að það sé hetjudáð að drepa síonista og „það þarf að drepa fleiri af þeim.“ Miklar umræður eru um það í Bretlandi að kennari var kærður fyrir hatursumræðu vegna þess að hann sýndi myndskeið af Donald Trump í kennslustofunni en ríkisstjórnin fagnar manni sem rekur áróður um að drepa Gyðinga, hvíta og bresku lögregluna. Til dæmis var Graham Linehan handtekinn fyrir að grínast með transfólk en breska ríkisstjórnin vann hörðum höndum að fá El-Fattah lausan úr fangelsi í Egyptalandi og fljúga honum til Bretlands.
