Komandi kynslóð skuldsett vegna Úkraínustríðsins – árlegir vextir þrír milljarðar evra

Aðildarríki ESB hafa ákveðið að taka lán til að fjármagna áframhaldandi stríð Úkraínu við Rússland. Ákvörðunin þýðir að skattgreiðendur ESB – og í raun unga kynslóðin í dag – munu þurfa að bera vaxtakostnað upp á þrjá milljarða evra á ári langt fram í tímann, skrifar Politico.

Eftir samningalotu í Brussel, sem stóð yfir alla nóttina, samþykktu leiðtogar ESB að taka 90 milljarða evra lán á næstu tveimur árum. Peningarnir eiga að tryggja að Úkraína verði ekki gjaldþrota í apríl á næsta ári. Samkvæmt búrókrötum ESB mun vaxtakostnaðurinn vegna lánanna nema um þremur milljörðum evra á ári frá 2028, sem verður fjármagnað í langtíma fjárlögum ESB fyrir komandi kynslóðir.

Úkraína stendur frammi fyrir 71,7 milljarða evra fjárlagahalla á næsta ári og er algjörlega háð erlendri aðstoð til að halda ríkiskerfinu og stríðinu gangandi. Samkvæmt nýjum lánapakka ESB er gert ráð fyrir að borga 45 milljarða evra strax á næsta ári og afganginn síðar.

Þrjú aðildarríki – Tékkland, Ungverjaland og Slóvakía – kusu að standa utan sameiginlega lánsins. Þau standa ekki í vegi fyrir lántöku hinna 24 ríkjanna og komast því hjá að taka þátt í þeirri fjárhagsbyrði sem 24 aðildarríki hafa sameinast um að taka á sínar herðar. Áætlunin inniheldur svipuð skilyrði og fyrri aðstoðarpakkar: greiðslur í áföngum, kröfur um spillingarvarnir og að fénu verði varið til hernaðar- og ríkisfjármála.

Ástæða lántökunnar er að ESB náði ekki samkomulagi um að stela frystum rússneskum eigum. Andstaðan kom aðallega frá Belgíu, þar sem flestar eignirnar eru geymdar hjá fjármálastofnun Euroclear. Belgía krafðist víðtækra ábyrgða gegn framtíða lagalegri og efnahagslegri áhættu sem önnur lönd voru ekki tilbúin að samþykkja. Niðurstaðan varð í staðinn sameiginlegt veðlán sem velt er á herðar komandi kynslóðir.

Formlega séð mun Úkraína ekki hefja endurgreiðslu lánanna fyrr en stríðinu lýkur og Rússland hefur verið sigrað og greitt stríðsskaðabætur. Búrókratarnir í Brussel viðurkenna þó að þetta sé háð óvissu. Í reynd gæti þurft að framlengja skuldina um óákveðinn tíma eða hún gjaldfelld á skattgreiðendur ríkjanna þegar þar að kemur.

Fara efst á síðu