Soros greiddi fjárfúlgur til að „kála X í höndum Elon Musks“

The Washington Free Beacon greinir frá því, að auðjöfurinn George Soros hafi styrkt breskan hóp sem vinnur að því að ritskoða íhaldssamar fréttasíður með 250 þúsund dollurum. Meðal annars hóf hópurinn herferð til að „kála“ vettvangi Elon Musk, X , með því að þrýsta á auglýsendur að hætta að auglýsa á X.

Stofnun George Soros Opið samfélag styrkti breska Miðstöð gegn stafrænu hatri með 250.000 dollara fjárframlagi í fyrra.

Miðstöð gegn stafrænu hatri Center for Countering Digital Hate CCDH, sem stofnað var af fyrrverandi aðgerðasinnanum Imran Ahmed innan Verkamannaflokksins, segist berjast gegn „nethatri og rangfærslum.“ En í raun þrýstir hópurinn á fjárfesta og auglýsendur til að sniðganga samfélagsmiðla sem ritskoða ekki efni sem CCDH hefur ekki samúð með, að sögn Washington Free Beacon.

Herferðin gegn Musk og X var afhjúpuð í einkaskilaboðum sem Racket News birti. Þar segir að CCDH hafi í kyrrþey skipulagt herferð til að „kála Twitter-síðu X“ með því að þrýsta á auglýsendur að slíta samstarfi við vettvanginn.

Elon Musk hefur svarað með því að höfða mál gegn CCDH og kallar samtökin „glæpasamtök.“ Hann hefur einnig fordæmt Soros fyrir „glæpi gegn mannkyni“ og sakað hann um að fjármagna ofbeldisfull mótmæli.

Uppljóstruð greiðsla Soros svarar fyrri spurningum um fjármögnun CCDH. Samtökin neita að upplýsa opinberlega um styrktaraðila sína. Árið 2023 höfðaði repúblikaninn Jim Jordan mál gegn CCDH til að þvinga fram lista yfir styrktaraðila hatursmiðstöðvarinnar.

Herferðin gegn íhaldssömum fjölmiðlum hefur einnig falið í sér tilraunir til að draga úr auglýsingatekjum hjá netmiðlum eins og The Federalist, Zero Hedge og Daily Wire. CCDH hefur beðið Google um að hætta að auglýsa á þessum síðum á þeirri forsendu að þær innihaldi „kynþáttafordómafullt“ efni.

Fara efst á síðu