Að senda peninga til Úkraínu er eins og að gefa alkóhólista kassa af vodka

ESB vill senda enn þá meiri peninga til Úkraínu, að sögn Viktors Orbáns, forsætisráðherra Ungverjalands. Hann telur það furðulegt miðað við spillinguna í landinu.

Úkraína er í hættu vegna spillingarhneykslis. Þá ætlar ESB að senda enn meiri peninga til Úkraínu, segir Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands.

Ríkiskassi Úkraína er tómur.

Orbán líkir þessu við að gefa alkóhólista meiri vodka. Orbán skrifar á X:

„Þetta er ótrúlegt. Þegar það sýnir sig að stríðsmafían hrifsar peninga evrópskra skattgreiðenda, þá vill framkvæmdastjórnin að við sendum þeim enn meiri peninga í stað þess að krefjast raunverulegs eftirlits eða stöðva greiðslurnar. Allt er þetta svolítið eins og að reyna að hjálpa alkóhólistanum með því að senda honum kassa af vodka. Ungverjaland hefur ekki týnt heilbrigðri skynsemina.“