Skýrsla SÞ: Palestínsk börn feitari en þau ísraelsku

(Samsett mynd RafahKid Kid, CC BY-SA 2.0 / Famartin, CC BY-SA 4.0)

Eftir að hryðjuverkasamtökin Hamas hófu stríð sitt gegn Ísrael hafa tíðar fréttir borist af meintri hungursneyð á palestínskum svæðum. Ný skýrsla UNICEF sýnir hins vegar að börn á Gaza eru feitari en ísraelskir jafnaldrar þeirra í öllum aldurshópum.

Samkvæmt gögnum UNICEF í skýrslunni eru 28% palestínskra barna á aldrinum 5-9 ára of þung samanborið við 23% prósent í Ísrael. Meðal 10-14 ára barna er talan 33% samanborið við 28% og á aldrinum 15-19 ára eykst bilið enn frekar þar sem 32% Palestínumanna eru of þung miðað við 19% Ísraelsmanna í þeim aldurshópi.

Offita er ekki bara vandamál fyrir börn. Með því að nota gögn frá Global Obesity Observatory og tengdar næringarfræðilegar upplýsingar er tekið fram að ef „Palestína“ væri flokkað sem land, þá væri hún meðal þjóða heims sem þjást af vandamálum offitu en 40% fullorðinna þjást af offitu samanborið við aðeins 23% í Ísrael.

UNICEF og næringarfræðingar hafa lengi varað við því að Mið-Austurlönd og Norður-Afríka séu miðpunktur tvöfaldrar kreppu: mörg börn lifa í vannæringu á sama tíma og milljónir búa við verksmiðjuframleiddan sykurríkan mat með offitu og sykursýki í kjölfarið.

Fyrri skýrslur hafa einnig leitt í ljós offitu meðal barna og fullorðinna í Gaza og rannsókn frá árinu 2019 sýndi að næstum helmingur fullorðinna eldri en 42 ára var með sykursýki af tegund 2. Önnur skýrsla frá Gaza, sem vitnar í tölur frá heilbrigðisráðuneyti Hamas, fullyrir að 9,6% íbúanna í Gaza séu með sykursýki og að hún sé orsök 11,2% dauðsfalla.

Skýrsla UNICEF sýnir einnig að „offita meðal skólabarna og unglinga í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku hefur tvöfaldast frá árinu 2000 og er stærri en þyngd undir viðmiði.“

Öfugsnúin frásögn

Þegar áróðurinn um hungursneyðina bregst, þá kvarta Hamas-tengdir fjölmiðlar yfir því að Ísrael sé að „neyða okkur til að þyngjast,“ og Gazabúar eru sagðir vera umkringdir matvöruverslunum „yfirfullum af súkkulaði, gosi og sígarettum auk feitra osta, hveiti, sykruðu sælgæti og pizzu.“ Búseti í Gaza sem réttlætir hryðjuverk Hamas í Ísrael kvartaði undan því að hann væri neyddur til að „láta ofan í sig kolefni, unninn ost og kjöt framleitt á tilraunastofu.“