ESB vill hækka meðlimagjöldin og koma á eigin skattakerfi – rætt um 60% hækkun á gjöldum Svíþjóðar

Jessica Rosencrantz, Evrópuráðherra Svíþjóðar, er óhress með fyrirhugaða hækkun ESB á aðildargjöldunum. Hún segist einnig vera alfarið á móti því, að ESB fái eigið skattakerfi fram hjá þjóðþingum aðildarríkjana (Mynd © sænska ríkisstjórnin).

Tillaga framkvæmdastjórnar ESB um næstu fjárlög gæti hækkað framlag Svíþjóðar til ESB um allt að 60%! Evrópuráðherra Svíþjóðar, Jessica Rosencrantz, heldur því fram að það sé „óraunhæft“ að um svo mikla hækkun verði að ræða.

Tillagan sem nú er rædd í Brussel varðar næstu langtímafjárlög ESB fyrir árin 2028–2034 upp á næstum 2.000 milljarða evra.

Í fyrra greiddi Svíþjóð um það bil 40 milljarða sænskra króna til ESB og með nýju fjárlögunum gæti það framlag því aukist verulega.

Jessica Rosencrantz segir að sænska ríkisstjórnin eigi að hafna slíkri aukningu á greiðslum sænskra skattgreiðenda til ESB. Hún sagði í viðtali við sænska ríkisútvarpið:

„Fyrir Svíþjóð þýðir þetta að minnsta kosti 60% hækkun á framlögum Svíþjóðar. Það er ekki raunhæft og mörg önnur lönd standa frammi fyrir svipuðum áskorunum.“

Fyrir fundinn komu Svíþjóð, ásamt Austurríki og nokkrum öðrum nettóframlagsríkjum sem eru lönd sem greiða meira til ESB en þau fá til baka, saman á morgunverðarfundi. Samkvæmt Rosencrantz lýstu ríkin yfir áhyggjum af því, hversu miklar hækkanir tillaga framkvæmdastjórnarinnar hefði í för með sér.

Frakkar vilja að ESB fái eigið skattavald „vegna franskra bænda“

En ekki var full samstaða um málið. Franski ráðherrann Benjamin Haddad lagði áherslu á að París vilji sjá víðtækari fjárhagsáætlun með áframhaldandi sterkum stuðningi við franska bændur og stærri ESB-fjárlög en minni aðildarríkin vilja samþykkja. Haddad sagði að „ESB vantaði meira eigin fjármögnun“ og átti þar við gjöld eða skatta sem fara beint í sjóði ESB án þess að fara í gegnum þjóðþingin. Svíþjóð hefur hingað til alfarið hafnað að Evrópusambandið taki upp eigið skattakerfi fram hjá aðildarríkjunum.

Búist er við leiðtogar aðildarríkja ESB muni ræða fjárlögin á leiðtogafundi í Brussel í desember. Lokaákvörðun um fjárlögin er væntanleg ári 2027.