Karlinn í tunglinu veit hverjir reiðast

Enginn er meiri hjálparhella óvina Sjálfstæðisflokksins en Björn nokkur Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra. Sonur Bjarna Benediktssonar, fyrrverandi borgarstjóra Reykjavíkur 1940 – 1947, forsætisráðherra 1963 – 1970, formanns Sjálfstæðisflokksins 1961 – 1970. Frændi hans Bjarni Benediktsson yngri sem var formaður Sjálfstæðisflokksins 2009 – 2025 tók við Sjálfstæðisflokknum eftir Geir Haarde með 36,6% fylgi. Þegar Bjarni leiddi flokkinn féll fylgið í fyrsta sinn í lágmarkið 23,7% og þegar Bjarni skildi við var fylgið komið niður í 19.4%. Núverandi forystu flokksins er mikill vandi á höndum að snúa dæminu við.

Björn Bjarnason er orðinn veruleikafirrtur og situr eins og karlinn í tunglinu og deilir út myrkum mána á þá sem dást ekki að tunglsljósi hans. Í Icesave deilunni hitti ég þá Björn Bjarnason og Styrmi Gunnarsson heitinn og átti prýðilegt samtal við þá ásamt tveimur breskum herramönnum sem komu til Íslands til að lýsa yfir stuðningi við Íslendinga vegna þess hversu þeim blöskraði hatur vinstri elítunnar í Bretlandi sem setti Íslendinga á lista hryðjuverkarmanna í stíl við Al Qæída.

Þeir Björn og Styrmir héldu úti Evrópuvaktinni sem var mikill stuðningur í því áróðursstríði sem þá geisaði gegn Íslandi. Skrif þeirra voru sannleikur sem því miður sumir fjölmiðlar eins og RÚV flíka ekki á hverjum degi, hvorki þá né nú. Í staðinn var það harmagrátur um Kúbu norðursins og að Ísland færi til fjandans ef dómstólaleiðin yrði valin sem var hraunað yfir landsmenn daglega. Bjarni Benediktsson kom að síðasta Icesave-samningnum og fullyrti að hann væri besta lausnin fyrir þjóðina. Þjóðin hafnaði þeim samningi gæfusamlega og fylgdi í stað staðfastri stefnu Davíð Oddssonar um að fara dómsstólaleiðina. Hefði þjóðin valið leið Bjarna Benediktssonar væru Íslendingar líklega enn að borga af þeirri skuld.

Í dag er Björn Bjarnason í hlutverki þeirra sem hrauna þeim áróðri yfir landsmenn að þeir verði að samþykkja bókun 35 sem færir ESB alræðisvald yfir Íslandi. Hjörtur Hjartarson, stjórnmálafræðingur, hefur í mjög svo málefnalegum greinum gert grein fyrir stöðu Íslands varðandi EES-samninginn og bókun 35 og bendir á eins og gert var í Icesave að best væri að fara dómsstólaleiðina. Þá fengist túlkun dómstólsins á því hvort EES-samningurinn héldi eða ekki.

Þeir Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson voru fullkomlega meðvitaðir um að til að tryggja stjórnarskrá Íslands yrði að setja með bókun 35. Þeir stóðu vörð um stjórnarskrána. Björn Bjarnason hefur hins vegar tekið að sér það hlutverk ásamt samherjum sínum í Viðreisn að „leiðrétta“ EES-samninginn. Sú breyting gengur gegn stjórnarskrá íslenska lýðveldisins sem fyrst yrði að breyta til að forgangsréttur íslenskrar löggjafar yrði afnuminn. Þetta vissu Jón og Davíð og Björn líka sem þagði í þrjá áratugi þar til núna að hann segir nauðsynlegt að afhenda Brussel löggjafarvaldið vegna gallaðs samnings af Íslands hálfu ár 1993.

Björn Bjarnason er í þvílíkum rökþrotum að hann ræðst persónulega að Hirti Hjartarsyni sbr:

„Viðbrögð hans í Morgunblaðinu 11. nóvember sýna hins vegar að hann hafði ekki málefnalega umræðu í huga. Svar mitt varð tilefni til þess að hann reiddist og beitti vísvitandi rangtúlkun, bæði á frumvarpinu sem liggur fyrir alþingi og þeim sjónarmiðum sem ég hef lýst.“

Síðan kemur Björn með útúrsnúning um að ESA sé ekki ákæruvald en viðurkennir að:

Ef ESA telur að ríki hafi ekki uppfyllt skuldbindingar sínar sendir hún fyrst formlegt áminningarbréf og rökstudda álitsgerð. Aðeins ef ríkið bregst ekki við getur hún vísað málinu til EFTA-dómstólsins, sem hefur dómsvaldið. Það er því dómstóllinn, ekki ESA, sem kveður upp úrskurð.“

Þegar karlinn er kominn í þrot þá er ekkert eftir í pokanum nema persónuárásir og uppálognar sakir. Rétt eins og að Hjörtur skilji ekki að EFTA dómstóllinn sem til og með heitir dómsstóll sé í rauninni dómsstóll.

Karlinn í tunglingu er einmana. Þegar hann nær ekki sambandi við jörðina neyðist hann að snúast hring eftir hring í eigin hugarórum. Þá má alltaf kasta myrkri á þá, sem standa staðfastir á grundvelli hagsmuna Íslands og stjórnarskrárinnar og segja þá reiða og beita vísvitandi rangtúlkun, vera smiði falskra kenninga. Björn Bjarnason vill tryggja yfirráð ESB yfir Íslandi en þykist vera á móti því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Hann segir það annarlegan tilgang að verja hagsmuni Íslands samkvæmt EES-samningnum.

Sér er nú hver heiðarleikinn…

Fara efst á síðu