Snyrtiiðnaður kvenna er stærri en vopnaiðnaður heims

Gústaf Níelsson sagnfræðingur og Gústaf Skúlason Þjóðólfi ræða um Úkraínustríðið og þær friðarviðræður sem í gangi eru. Gústaf Níelsson hefur trú á því að friður komist á, þótt það þýði að Úkraína verði að sjá á eftir landsvæðum og verði ekki Natómeðlimur.

Mark Rutte útskýrði á Íslandi (þátturinn var tekinn upp áður) að 4-5 Natómeðlimir legðust alfarið gegn því að Úkraína yrði meðlimur í Nató.

Zelenskí er í þröngri stöðu, erfitt að manna herinn og gríðarlegt spillingarmál í gangi hjá ríkisstjórninni. Spjótin beinast að Zelenskí en hann hefur rekið nokkra ráðherra úr ríkisstjórninni. Háttsettir hafa flúið landið með fullar töskur fjár og enginn getur gert almennilega grein fyrir því í hvað til dæmis fjárstuðningur Íslendinga hefur farið.

Báðir vonuðust nafnarnir til þess að að friður komist sem fyrst á, eins og almenningur í heiminum og ekki síst sjálfir Úkraínumenn vilja.

Evrópusambandið með konu í stafni hegðar sér óskynsamlega og hefur uppi stór orð um áframhaldandi stríð. Sagnfræðingurinn tekur ekki mikið mark á þeim stóru orðum en bendir hins vegar á að sleikjuháttur valkyrjanna á Íslandi við ESB sé stórhættulegur landi og þjóð.

Það er áhugaverð þversögn að snyrtiiðnaður fyrir konur er stærri en vopnaiðnaður heims. Á meðan verið er að slátra hermönnum í Úkraínu og skortur á vopnum að sögn, þá er enginn skortur á varalit og andlitsfarða fyrir íslensku valkyrjurnar.

Fara efst á síðu