Macgregor: Lygaveldi Vesturlanda er að hrynja

Jafnvel „snjallasti lygarinn“ á Vesturlöndum getur ekki lengur falið það sem er að gerast í Úkraínu. Þetta fullyrðir bandaríski hernaðargreinandinn Douglas Macgregor, fv. ofursti, í viðtali við Glenn Diesen (sjá YouTube að neðan). Hann telur líklegra að úkraínski herinn hrynji en að friðarsamningur náist.

Douglas Macgregor, ofursti bandaríska hersins á eftirlaunum, er ekki mjög sannfærður um að friðarsamningur náist í Úkraínu. Hann telur líklegra að úkraínski herinn muni hrynja og með honum allar lygar Vesturlanda.

Samkvæmt Macgregor er Úkraínustríðið í raun stríð Vesturlanda gegn Rússlandi:

„Ég tel að lygaveldið sem Vesturlönd hafa byggt upp undanfarin þrjú og hálft ár til að reyna að réttlæta þetta tilgangslausa eyðileggjandi stríð gegn Rússlandi á kostnað Úkraínu og þjóðar hennar sé að molna sundur. Og ég tel að það muni molna hraðar og hraðar með hverri viku sem líður í náinni framtíð. Því ástandið í Úkraínu er komið á þann stað að jafnvel snjallasti lygarinn í Washington, London, París eða Berlín getur ekki falið raunveruleikann lengur fyrir almenningi. Úkraínski herinn er að hrynja. Æðstu herforingjar eru að gefast upp ásamt þúsundum manna sinna.“

„Ég er því ekki viss um, hvort þessar ímynduðu hugmyndir um að ná friði með einhvers konar samkomulagi sem Washington miðlar og fær að lokum stuðning frá Evrópu séu raunhæfar eða jafnvel viðeigandi lengur. Atburðirnir gerast hraðar en Vesturlönd ná að fylgjast með.“

Macgregor telur að Rússland hafi engan áhuga á að fara langt vestur:

„Hver með fullu viti hefur áhuga á að taka yfir nokkuð í Evrópu nútímans, hvað þá Vestur-Úkraínu? Það er gríðarleg byrði. Það er enginn ávinningur af því.“

Fara efst á síðu