Skríðandi á hnjánum skulu landsmenn vera

Samkvæmt utanríkisráðherra Íslands, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, mun „alþjóðasamstarf í bland við innlenda krafta tryggja fullveldi Íslands næstu hundruð árin og um alla framtíð.“ Eins máls flokkur hennar hefur frá upphafi skilgreint hugtakið alþjóðasamstarf = innganga í Evrópusambandið. Þess vegna þýðir setning hennar: „Evrópusambandið í bland við innlenda krafta tryggja fullveldi Íslands…“

Sú stefna hittir sannleikann í mark; Þorgerður, Kristrún og Inga starfa sem undirbúnings landsstjórar ESB á nýlendunni Íslandi og bíða eftir formlegri staðfestingu í komandi, fölsuðum ESB kosningum. Þeirra hlutverk í aðdraganda blekkingarkosninganna er að koma landsmönnum á kné, fyrst og fremst sjávarútveginum, síðan öðrum atvinnugreinum og að lokum landsmönnum öllum. Ósigur Steingríms og Jóhönnu ásamt útrásarvíkingum og hrægömmum og Iceave-tapi ESB hefur öðlast nýtt líf í sameiginlegu, ofstækisfullu hatri valkyrjanna gegn öllu sem dregur andann á Íslandi. Hrægammasjóðirnir gleyma engu og nú eiga Íslendingar að fá að finna fyrir því, að þeir risu upp, sáu og sigruðu í Icesave.

Eins og eineygði risinn heldur Þorgerður sig enn í Kúbuhelli norðursins og lepur súrgraut draumsýnar sinnar um embætti hjá ESB í Brussel. „Við þurfum sæti við borðið, því það er alltaf betra en að sitja ein yfir súrmat. Með við meinar hún ég, þjóðarhagur er ekki það sama og hagur þess sem situr við borð þeirra sem enginn hefur kosið og trónar sem alvaldur í álfunni. Kannski má endurtaka leikinn með kúlulánið forðum að upphæð 1,7 milljarða króna? Ekki öllum landsmönnum gefið að fá svo stór lán eða fá þau afskrifuð eins og kúlulánadrottningunni frá Íslandi.

Hjörtur J. Guðmundsson, alþjóða stjórnmálafræðingur, hefur í góðum greinum Mbl. skýrt frá ætlun Evrópusambandsins með Ísland, að nú á að véla landið inn í sambandið. ESB-þingið hefur samþykkt stefnu sambandsins á Norðurslóðum og ESB lætur nú kné fylgja kviði gagnvart Íslandi. ESB segist ætla að taka virkan þátt í innanríkismálum Íslands vegna komandi ESB-kosninga á Íslandi sem valkyrjurnar þykjast að eigi að vera spurning um hvort „taka eigi aðildarviðræður við ESB að nýju.“ Allt er undir komið að Íslendingar svari já og ESB mun taka það sem já við aðild Íslands að ESB, að Íslendingar hafi samþykkt að Ísland gangi í ESB. Eftir jáið verður ekki aftur snúið.

Áður fyrr var talið rangt að erlendir aðilar blönduðu sér í innanríkismál á Íslandi en í ranni valkyrjustjórnarinnar eru það húsbændurnir sem leggja reglurnar. Íslendingar eiga eftir að fá að kynnast því sjálfir, hvernig ESB og valkyrjurnar sundra þjóðinni, gera hana kraftlausa með ofursköttum og reglugerðarófriði sem breytir Íslandi í efnahagslega eyðimörk; hleypa saman fylkingum með og gegn inngöngu í ESB og svo munu landsmenn slást á Austurvelli sér til blóðs, ein fylking með ESB fánann, önnur fylking með fána Íslands.

Vofa útrásarvíkinga og hrægammasjóða er endurvakin í höndum ESB og íslensku valkyrjanna. Á fullveldisdegi Íslands 1. desember 2025 hljómar stríðsstefnan um yfirtöku Íslands:

Skríðandi á hnjánum skuluð þér vera!

Leiðrétting: Nafn Hjartars J. Guðmundssonar, alþjóða stjórnmálasérfræðings var misritað sem núna hefur verið leiðrétt.

Fara efst á síðu