1.200 blaðsíðna leynileg stríðsáætlun Þjóðverja hefur lekið út. Wall Street Journal fjallar ítarlega um áætlunina í grein Bertrand Benoit þann 26. nóvember s.l. Áætlunin lýsir meðal annars hvernig flytja á allt að 800.000 þýska, bandaríska og aðra Nató-hermenn að vígstöðvunum í austri í stórstyrjöld gegn Rússum.
Áætlunin heitir Aðgerðaáætlun Þýskalands (OPLAN DEU) og hefur verið tekið saman af háttsettum þýskum herforingjum, að sögn blaðsins. Herforingjarnir telja að Rússland verði tilbúið að ráðast á Nató ár 2028 eða jafnvel fyrr.
Áætlunin lýsir stefnu sem nær til „alls samfélagsins“ og felur í sér borgaralega geirann og einkafyrirtæki í varnarmálum. Áætluninni er lýst sem afturhvarfi til sjónarmiða kalda stríðsins um varnarmál. Þjóðverjar byrjuðu að skissa upp áætlunina stuttu eftir innrás Rússa í Úkraínu.
Markmiðið sagt vera að „koma í veg fyrir stríð“
Áætlunin inniheldur meðal annars ítarlegar leiðbeiningar um að senda 800.000 Nató-hermenn frá Evrópu og Bandaríkjunum til austurvígstöðvanna gegn árás Rússlands. Með fylgir kort af flutningsleiðum, höfnum, vegum, járnbrautum og ám.
Samtímis eru vandamál varðandi innviði Þýskalands talin ógn við varnarmálin sem verði að ráða bót á hið fyrsta. Til dæmis er talin brýn þörf á að gera við 20% af þjóðvegum landsins.
Þýska áætlunin miðar fyrst og fremst að því að auka hernaðarlegan viðbúnað til að fæla óvininn frá árás. Háttsettur herforingi sem var einn af höfundum áætlunarinnar, segir samkvæmt blaðinu:
„Markmiðið er að koma í veg fyrir stríð með því að gera óvinum okkar ljóst að ef þeir ráðast á okkur, þá muni þeim ekki takast það.“
Þýskaland þarf að ná aftur varnarhæfileikum sem hafa glatast með tímanum, sagði varavarnarmálaráðherra landsins, Nils Schmid:
„Við verðum að læra upp á nýtt það sem við höfum glatað. Við verðum að fá ellilífeyrisþega til að koma og segja okkur hvernig við gerðum hlutina áður.“
