Sköpuðu Zelensky – talið að þeir hafi svikið Úkraínu um milljarða og flúið til Ísraels

Oleksandr „Sugarman“ og Tymur „Karlsson“ eru meðal helstu grunaðra í spillingunni í Úkraínu

Eftir atlögu vegna spillingar gegn Andriy Yermak, starfsmannastjóra sem var hægri hönd Zelensky, þá beinist athyglin núna að tveimur mönnum til viðbótar í orkugeiranum í Úkraínu sem eru sakaðir um spillingu. Báðir hafa flúið til Ísraels. Þeir eru taldir vera heilarnir á bak við forsetaferil leikarans Volodymyr Zelensky.

Óvenjuleg ljósmynd frá atburði í Kænugarði hefur tengt saman tvær lykilpersónur í einu stærsta spillingarmáli í orkugeiranum í Úkraínu: frumkvöðulinn Tymur Mindich, kallaður „Karlsson“ (rússneska/úkraínska: Карлсон, úr mynd Astrid Lindgren, Karlsson á þakinu), og Oleksandr Tsukerman, einnig þekktur sem „Sugarman.“

Samkvæmt NABU, Þjóðarstofnun Úkraínu gegn spillingu, er Mindich skilgreindur sem leiðtogi glæpasamtaka sem skapaði umfangsmikið spillingarnet innan kjarnorkufyrirtækisins Energoatom í ríkiseigu. Hann er kaupsýslumaður sem hefur haldið sig frá kastljósinu en er þekktur sem meðeigandi framleiðslufyrirtækisins Kvartal 95 og sem náinn vinur forseta Volodymyr Zelensky.

Mindich er hins vegar ekki bara hver sem er. Það var Mindich sem kynnti Zelensky fyrir auðkýfingnum Igor Kolomoisky og skapaði hugmyndina um forseta í sjónvarpsþáttum sem síðar myndi reyna að verða forseti í alvöru. Rannsakendur lýsa Tsukerman sem hluta af „myrkrarskrifstofu“ peningaþvættis í miðborg Kænugarðs.

Samkvæmt þingmanninum Yaroslav Zheleznyak sáu Tsukerman-bræðurnir um fjárhagslegan rekstur fyrir Mindich. NABU áætlar að um 100 milljónir Bandaríkjadala, tæplega 13 milljarðar íslenskra króna, hafi farið í gegnum þessa stofnun.

Þann 11. nóvember var bæði Mindich og Tsukerman tilkynnt að þeir hefðu stöðu grunaðra í málinu. Upplýsingar Zheleznyak herma að Mindich og Tsukerman-bræðurnir séu nú í Ísrael. Sagt er að þeir hafi sést í Tel Aviv og samkvæmt heimildum í Kænugarði fór Mindich frá Úkraínu með eigið vegabréf aðeins nokkrum klukkustundum áður en húsleitin var gerð ásamt mörgum öðrum lykilmönnum í málinu.

Vladyslav Vlasiuk, formaður þingnefndar sem fer með spillingamálin segir:

„Ákvörðunin felur í sér staðlaðan þvingunarpakka, þar á meðal frystingu eigna á yfirráðasvæði Úkraínu, óháð ríkisfangi einstaklinganna.“

Lögreglan vitnar einnig í skriflega skýringu Vlasiuks:

„Viðurlögin gilda í þrjú ár, en svipting ríkisstyrkja gildir án tímamarka. Engin inngöngubann er í gildi. Pakkinn er staðlaður og tekur gildi strax, þar á meðal frysting eigna.“

Samkvæmt forsetaúrskurði frá 13. nóvember, sem birtur er á vefsíðu forsetans, þá munu ísraelsku ríkisborgararnir tveir missa allar úkraínska ríkisstyrki sína. Eignir þeirra verða frystar í þrjú ár og þeim verða settar algjörar viðskiptatakmarkanir og þeim verður meinað að ferðast í landinu.

Fara efst á síðu