ESB segist vera að byggja upp „lýðræðisskjöld“ gegn erlendum áhrifum, en í raun snýst það um að stjórna íbúum Evrópu og tryggja sína eigin útgáfu af „raunveruleikanum.“ Þýska ESB-þingkonan Christine Anderson fullyrti þetta á Evrópuþinginu (sjá X að neðan).
Christine Anderson gagnrýndi innleiðingu svokallaðs lýðræðisskjölds innan ESB í umræðu á ESB-þinginu. Opinberlega segir ESB að lýðræðisskjöldurinn „styrki sameiginlega getu okkar til að sporna gegn upplýsingamisnotkun og falsupplýsingum.“
En samkvæmt Anderson snýst málið í raun um eitthvað allt annað:
„Framkvæmdastjórn ESB vill byggja upp lýðræðisskjöld. Þið segið að það eigi að vernda okkur gegn erlendum afskiptum, en öll verkfæri ykkar beinast inn á við. Fjölmiðlar sem ESB fjármagnar og sagðir eru traustir, staðreynda-rannsakendur sem ESB styrkir ásamt neti áhrifavalda sem ESB stjórnar og eru valdir og fá þjálfun og samhæfðir af Brussel: Þetta er ekki skjöldur, heldur ráðuneyti sannleikans.“
„Áhrifavaldar eiga að vera alvöru raddir, og ekki framlenging á ríkisáróðri. Þegar stjórnmálastofnanir borga einhverjum fyrir að útskýra rétta frásögn, hættir sá einstaklingur að vera áhrifamaður. Þeir verða talsmenn. Þið viljið her áhrifavalda og staðreynda-rannsakenda til að búa til samþykki. Stærsta ógnin við lýðræðið eru ekki tröll í Moskvu. Stærsta ógnin við lýðræðið er framkvæmdastjórn ESB sem telur almenning hvorki vera skynsaman né nægjanlega gáfaðan til að taka eigin ákvarðanir, heldur sér almenning sem óþroskuð og óþekk smábörn sem verður að hafa eftirlit með. Í hreinskilni sagt, fólk er orðið þreytt á þessu og það hefur fullan rétt á því að vera það.
– Vinsamlegast hættið að þröngva ykkar útgáfu af lýðræði upp á borgarana.“
