Þúsundir glæpamanna lifa á félagsbótum í Svíþjóð

Um 4.000 manns sem lögreglan telur vera virka hópglæpamenn eða tengjast glæpasamtökum í Svíþjóð lifa á félagsbótum. Samtals nemur upphæðin 3,6 milljörðum sænskra króna undanfarin ár samkvæmt nýrri skýrslu frá Sjúkratryggingum Svíþjóðar.

Hér er fyrst og fremst um að ræða greiðslur sjúkradagpeninga, veikindaréttindi og endurþjálfunarstyrki fyrir fólk sem að mati lögreglunnar er virkt í eða tengist glæpasamtökum. Anna Tenje, félagsmálaráðherra Svíþjóðar segir við TT að ástandið sé „gróf ögrun.“

Lögreglan skilgreinir „tengsl“ við virka glæpamenn í glæpasamtökum, þegar einstaklingur tengist að minnsta kosti tveimur þekktum hópglæpamönnum. Samkvæmt lögreglunni taka flestir þessir einstaklingar sjálfir þátt í glæpum, aðallega fíkniefnasmygli en einnig í ýmis konar þjónustu fyrir glæpahópana.

Í skýrslunni benda Sjúkratryggingar Svíþjóðar á dæmigert upplegg eins og fölsuð læknisvottorð og hjónaskilnaði á pappírnum, þar sem pör skrifa að þau séu aðskilin og fá hærri bætur en halda samt áfram að búa saman.

Ríkisstjórnin vísar til nýrra laga sem taka gildi í desember og munu auðvelda yfirvöldum að skiptast á upplýsingum um grunuð afbrot í velferðarkerfinu. Anna Tenje leggur áherslu á vinnu gegn fölsuðum læknisvottorðum og að koma á hertum refsiaðgerðum. Hún segir:

„Ef við ætlum að taka hart á glæpahópunum, þá verðum við að stöðva þetta útstreymi af sameiginlegu skattfé okkar.“

Samkvæmt stjórnvöldum greiðir sænska velferðarkerfið ranglega út um 15 til 20 milljarða sænskar krónur árlega. Helmingurinn er talinn vera glæpir.

Skýrsla Sjúkratrygginganna byggir á mati lögreglunnar frá árinu 2024, þegar 62.000 manns voru taldir virkir eða tengdir glæpasamtökum. Í nýjustu stöðuskýrslunni talar lögreglan um 67.500 manns innan glæpasamfélagsins, þar af eru 17.500 flokkaðir sem virkir glæpamenn en hinir sem tengdir. Lögreglan leggur áherslu á að ekki sé hægt að segja með vissu hvort glæpamönnunum hafi fjölgað þar sem breyttar matsaðferðir voru teknar upp sem hafa áhrif á talnafræðina.

Fara efst á síðu