Hákon Jóhannsson, Kópavogi hefur sent sendinefnd ESB á Íslandi bréf um boðuð afskipti ESB af þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu þan 29. ágúst n.k. Í bréfi sínu vísar hann til umfjöllunar á vef stjornmalin.is þar sem kemur fram að ESB hyggist „með virkum hætti taka þátt í því með íslensku ríkisstjórninni að kynna kosti mögulegrar aðildar að ESB og vinna að auknum undirbúningi fyrir endurnýjað umsóknarferli ef Ísland virkjar með formlegum hætti umsókn sína.“
Hákon skrifar í bréfi sínu þar sem hann biður um upplýsingar frá sendinefndinni að hann óski eftir svari um þær lagalegu heimildir og viðmið sem eru til grundvallar fyrirhugaðri aðkomu ESB að upplýsingagjöf eða kynningarstarfi í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu Íslands sem er utan fyrir sambandið. Hann biður einnig um hvernig fyrirhugað samstarf við íslensk stjórnvöld er skilgreint og í hvaða umfangi það verður og hvernig það samræmist íslenskri kosningalöggjöf.
Þá spyr Hákon um hvaða stjórnvald beri ábyrgð á samstarfinu af hálfu Íslands, hvort skrifaður hafi verið samstarfssamningur um upplýsingar ESB sem dreifa á á Íslandi til að hafa áhrif á útkomu þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Annar hluti upplýsinga sem Hákon Jóhannsson vill fá er um eðli aðstoðar ESB gegn erlendum afskiptum af kosningaferlinu:
„Hvað felst í því að bjóða fram aðstoð gegn erlendum afskiptum af kosningaferlinu og á hvaða grunni hvílir aðkoman og einstakir þættir þessarar aðstoðar? Hvernig verður starfsemin fjármögnuð, hver ber ábyrgð á framkvæmd hennar og hvaða gagnsæiskröfur gilda um ráðstöfun fjármuna og framvindu verkefna?“
Bréf Hákonar Jóhannssonar má lesa hér að neðan:
