Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands skrifar á X að „augljóslega séu samningaviðræður Íslands við ESB hafnar.” Morgunblaðið greinir frá:
– Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, segir augljóst að samningaviðræður Íslands við Evrópusambandið (ESB) séu þegar hafnar og ekki eigi að virða niðurstöðu kosninganna í ágúst.
Í færslu á X svarar hann færslu Mörtu Kos, stækkunarstjóra ESB, þar sem hún birtir mynd af sér með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og skrifar að ef Íslendingar kjósi með því að hefja aðildarviðræður við ESB að nýju sé ESB staðráðið í að flýta fyrir samningaviðræðum „um forgangsmál Íslands.“
Segist Kos hafa rætt við Þorgerði um „sérstakan veruleika Íslands.“
Ekki nóg að treysta þjóðinni
Ljóst er að samningaviðræður við #ESB ERU ÞEGAR HAFNAR; þjóðaratkvæðagreiðslan í lok ágúst er hundsuð. Það er ekki nóg að „treysta þjóðinni“, til að vitna í uppáhaldsfrasann. Maður verður líka að VIRÐA þjóðina, vilja fólksins,“ skrifar forsetinn fyrrverandi.
Þá spyr Ólafur einnig hver „sérstakur veruleiki Íslands“ sé sem Þorgerður ræddi við Kos.
