Javier Milei efnir enn eitt kosningaloforð sitt
Ríkisstjórn Argentínu hefur lokið ferlinu við úrsögn úr Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) og segir nauðsynlegt að viðhalda heilbrigðisfullveldi sínu.
Þrátt fyrir að slíta tengsl við stofnunina tryggir Argentína að „alþjóðlegt samstarf á sviði heilbrigðismála muni halda áfram í gegnum tvíhliða og svæðisbundna samninga.“
„Í dag tekur úrsögn Argentínu úr Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) gildi, einu ári eftir formlega tilkynningu lands okkar,“ sagði [utanríkisráðherrann Pablo] Quirno og minnti á að tilkynningin var send 17. mars 2025 til framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.
„Í samræmi við ákvæði Vínarsamningsins um samningarétt tekur úrsögnin gildi einu ári síðar,“ bætti hann við.“

„Ákvörðunin var réttlætt […] af Javier Milei forseta og teymi hans sem viðbragð við „djúpstæðum ágreiningi“ við WHO á tímum COVID-19 heimsfaraldursins. Forsetinn kallaði stofnunina „skaðlega og framkvæmdararm þess sem var stærsta tilraun í félagslegri stjórn í sögunni“.“
Euronews eyðir töluverðu púðri í að gagnrýna Milei og telur ákvörðun hans „firru.“
