Ikea í Stavanger fær 1099 reiðhjólastæði en aðeins 183 bílastæði

Það eru greinilega til óvitar á fleiri stöðum en í stjórn Reykjavíkurborgar sem virðast hata bíla og neyða fólk til að hjóla og keyra barnavagna í snjósköflum. Gáfnaljósin í Stavanger í Noregi virðast lýsa jafnskært og gávitar Reykjavíkurborgar. Þar eiga viðskiptavinir Ikea að reiða heim Billy bókahillur, rúm og skápa á reiðhjólunum, því Ikea fær 1099 reiðhjólastæði en aðeins 183 bílastæði.

Miklar umræður eru um þessa merkilegu ákvörðun og segir Hans Inge Skadberg fv. verslunarstjóri Ikea Forus og ábyrgðaraðili nýja vöruhússins að stjórn Ikea verði að taka eitt skref afturábak til að ræða hvort og þá hvernig verður haldið áfram.

Sveitarfélagið hafði sótt um undanþágu fyrir fleiri bílastæðum við Ikea en Umferðarráð Noregs sagði blákalt nei. Ikea hefur 685 bílastæði verslun sína í Lura í Sandnes suður af Stavanger og það verður ómögulegt að reka nýju verslunina með 500 færri bílastæðum.

Algjör geðveiki

Kristoffer Sivertsen þingmaður Framfaraflokksins segir að krafan um á annað þúsund hjólreiðastæða sé algjör geðveiki:

„Þetta er algjörlega galið, ég get ekki einu sinni ímyndað mér af hverju það er þörf á 1099 hjólreiðastæðum við Ikea. Það fer enginn að hjóla heim með Billy bókahyllu fyrir aftan sig. Það er risastórt vandamál að fulltrúi ríkisins stöðvi skynsamlega þróun og valti yfir staðbundið lýðræði. Þegar bæði sveitarfélagið og fylkið hafa veit samþykki fyrir bílastæðum á ríkið ekki að hunsa þá ákvörðun og eyðileggja lausn fyrir svæði sem hefur staðið tómt í meira en tíu ár.”