Svíar segja alfarið nei við evrunni. Þrátt fyrir það þrýsta Frjálslyndir á um nýja þjóðaratkvæðagreiðslu, þrátt fyrir að stuðningurinn sé í raun nánast enginn.
Nýjasta SOM-könnunin (sjá pdf að neðan) sýnir skýrt og stöðugt andóf gegn evrunni. Aðeins 25% telja það góða hugmynd að taka upp evruna, á meðan 46% segja nei. Stuðningurinn minnkar aftur eftir tímabundna aukningu:
Svíar vilja ekki evruna
Gögn til langtíma sýna að andstaða gegn evrunni hefur stöðugt verið meiri en stuðningur í Svíþjóð. Þetta er því ekki tímabundin skoðun – þetta er stöðugt nei frá kjósendum. Sænski Alþýðuflokkurinn hefur sett sig gegn veru Svíþjóðardemókrata í ríkisstjórninni en hyggst gefa eftir þá kröfu ef Svíþjóðardemókratar gangast með á að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um evruna í Svíþjóð sem Svíþjóðardemókratar hafa samþykkt að verði samhliða kosningunum ár 2030. Slík atkvæðagreiðsla gengur gegn afstöðu Svía sem höfnuðu evrunni í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2003, þegar 56% sögðu nei við evrunni og 42% já.
63% Svía segir þróunina vera í ranga átt
Aðrir þættir könnunarinnar gætu einnig verið áhugaverðir fyrir Ísland en niðurstöðurnar sýna djúpstæðar breytingar í sænsku samfélagi síðustu áratugi. Eitt það mest sláandi í skýrslunni er hversu neikvæð sýn Svía er orðin á þróun eigin samfélags. Samkvæmt nýjustu mælingum telja 63% að þróunin fari í ranga átt, á meðan aðeins 16% telja hana fara í rétta átt . Þetta er afgerandi vísbending um vaxandi óánægju og vantraust.
Samhliða þessu hefur traust til stjórnmálamanna veikst verulega. Aðeins 38% Svía segjast bera traust til stjórnmálamanna, á meðan 62% segjast ekki gera það . Þetta er þróun sem þekkist víða á Vesturlöndum, en er sérstaklega áberandi í Svíþjóð.
Mikill meirihluti Svía hefur áhyggjur af skipulagðri glæpastarfsemi, hryðjuverkum og veikingu lýðræðis. Þessi þróun hefur átt sér stað á tiltölulega stuttum tíma og undirstrikar hversu hratt samfélagsleg staða getur breyst. Íslendingar geta tekið það sem viðvörun til sín, þegar íslenskir stjórnmálamenn líta til Svíþjóðar sem fyrirmyndarlandsins.
