Tekið er eftir því í Svíþjóð hjá valkostamiðlum að Íslendingar gætu þegar í ágúst þurft að taka afstöðu með eða á móti ESB og að yfirvöld séu að hraða umsóknarferlinu. Miðillinn Frelsisfréttin Frihetsnytt skrifar grein um fyrirhugaða flýtiatkvæðagreiðslu þegar í ágúst og vitnar í Politico sem vísar til heimildarmanna sem eru hnútum kunnugir. Fjölmiðillinn segir að áætlun ESB veki gagnrýni og vísar til greinar Páls Vilhjálmssonar blaðamanns í The European Conservative, þar sem segir að komandi þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi sé blekking tóm.
Páll Vilhjálmsson skrifar:
„Komandi atkvæðagreiðsla – sem sniðgengur niðurstöðu þingkosninganna og er sýndarmennska um að taka upp aðildarviðræður að nýju – er skrumskæling lýðræðisins. Þetta eru svik bæði gagnvart þingi og þjóð.
Gefið er í skyn að atkvæðagreiðslan sé lýðræðislegt samtal en hún virkar í reynd sem aðferð til að komast fram hjá andstöðunni við ESB sem kjósendur veittu Alþingi.“
Frelsisfréttin greinir frá því, að valdhafarnir á Íslandi hafi fastan ásetning um að koma Íslandi inn sem allra fyrst í hið yfirþjóðlega samband.
Skoðun almennings eigi eftir að koma í ljós og þá skýrist, hversu mikil andstaða sé gegn ESB í raun og veru á Íslandi.
