Á að líta út sem að Úkraína búi kjarnorkuvopnin til sjálf
Frakkland og Bretland vinna „á fullu“ í því að útvega Úkraínu kjarnorkuvopn, að því er rússneska leyniþjónustan heldur fram, samkvæmt frétt Tass fréttastofunnar. Elítan á Vesturlöndum neitar að sætta sig við hernaðarlegan ósigur gegn Rússlandi.
Rússneska leyniþjónustan, SVR, heldur því fram að Frakkland og Bretland séu að íhuga að útvega Úkraínu kjarnorkuvopn.
Samkvæmt upplýsingum er „breska og franska elítan“ eins og Tass orðar það, ekki tilbúin að sætta sig við ósigur í Úkraínu.
Tass vitnar í rússnesku leyniþjónustuna SVR:
„Samkvæmt upplýsingum sem rússneska SVR hefur aðgang að, er unnið að fullu að því bæði í London og París að útvega Úkraínu slík vopn sem og aðstoð við afhendingu þeirra. Það felur í sér leynilegan flutning á hlutum, búnaði og tækni sem búin er til í Evrópu og send áfram til Úkraínu.“
Látið verður líta út fyrir að Úkraína sjálf hafi þróað vopnið samkvæmt fréttastofunni.
„Api með handsprengju“
Anton Bibarov-Gosudarev, formaður borgararáðs Zaporizjzjahéraðs, sagði við TASS að:
„Afhending kjarnorkusprengju frá London og París til stjórnarinnar í Kíev mun breyta Úkraínu í „apa með handsprengju.“ Þetta sýnir brjálsemi stefnunnar sem bæði Bretland og Frakkland fylgja í dag. Úkraína með kjarnorkuvopn er eins og api með handsprengju. Greinilega eru bæði Frakkland og Bretland að verða slíkir apar í dag, ef þau eru svona áfjáð í að flytja kjarnorkutækni til lands án lögmætrar ríkisstjórnar, þar sem opinbera stjórnkerfið er að hrynja fyrir framan augum okka.“
Brot á alþjóðabanni við útbreiðslu kjarnorkuvopna
Hann sagði að flutningur kjarnorkuvopna til Úkraínu brjóti gegn alþjóða sáttmálanum um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna. Bibarov-Gosudarev telur að ef slík tilraun verður gerð, muni Rússland hafa allar ástæður til að nota hvaða kjarnorkuvopn sem er, þar á meðal taktísk.
„Og ekki aðeins gegn hinni svo kölluðu Úkraínu, heldur einnig þeim löndum sem ætla að brjóta kjarnorkusáttmálann.“
