Samkvæmt danska prófessornum Bjorn Lomborg hafa grænu umskiptin kostað heiminn 16 billjónir dollara fram að þessu (trilljónir á ensku). Stephen Moore skrifar um málið í Epoch Times og veltir fyrir sér, hvort loftslagsblekkingin sé ekki „stærsta fjármálasvindl sögunnar?“
Danski prófessorinn Bjorn Lomborg hefur komist að þeirri niðurstöðu að grænu umskiptin hafa kostað stjarnfræðilega 16 billjónir dollara. Lomborg skrifar á X (sjá að neðan):
„Loftslagsbaráttufólk segir að grænt sé ódýrt. Það er það ekki. Alþjóðlegur kostnaður við grænu umskiptin er þegar komin yfir 16 billjónir dollara og eykst um rúmlega tvær billjónir dollara á ári (2% af alþjóðlegri landsframleiðslu). Þetta er 113 sinnum hærri upphæð en varið er til að berjast gegn hungri í heiminum. Þrátt fyrir þennan kostnað, þá setti koltvísýringslosun nýtt met á síðasta ári.“
Greinin í The Epoch Times fjallar um þessar upplýsingar. Höfundurinn veltir fyrir sér hvort loftslagsmálin séu „stærsta fjármálasvindl sögunnar?“ Moore spyr:
Hvað gagn hafa allir þessir peningar gert?
„Líklega hefur engu lífi verið bjargað eða verður bjargað með þessari skammarlegu og gríðarlegu misskiptingu mannauðsins. Stríðið gegn öruggu og afkastamiklu jarðefnaeldsneyti hefur kostað ótal mannslíf í fátækum löndum og gert þessi lönd fátækari … Frá því að krossferðin gegn hlýnun jarðar hófst fyrir um 30 árum síðan, þá hefur hitastig jarðarinnar ekki hækkað um einn tíunda hluta úr gráðu – eins og jafnvel hamfarahlýnunarsinnar verða núna að viðurkenna. Með öðrum orðum, þá hefur 16 billjónum dollara verið eytt – margir hafa orðið ofboðslega ríkir … en það er ekki einn eyrir sjáanlegur í mælanlegum ávinningi.“
Kostnaðurinn er í rauninni miklu verri. Því 16 billjónum dollara hefði mátt eyða í eitthvað mikilvægara í staðinn skrifar Moore:
„Hvað ef 16 billjónum dollara hefði verið varið í hreint vatn fyrir fátæk lönd? Eða til að koma í veg fyrir dauðsföll af völdum sjúkdóma eins og malaríu sem hefði mátt forðast? Eða í skólabyggingar í afrískum þorpum til að útrýma ólæsi? Eða til að koma áreiðanlegri og hagkvæmri raforku til á annan milljarða manna sem enn skortir rafmagn? Eða til að lækna krabbamein?
Það hefði verið hægt að bjarga mörgum milljónum mannslífa.“
