Ríkisræða Donald Trumps 2026

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, flutti aðra ríkisræðu forsetatímabilsins í nótt að íslenskum tíma fyrir nær fullsetnu þingi beggja deilda Bandaríkjaþings ásamt sérstaklega boðnum gestum eins og til dæmis bandaríska hokkíliðinu sem urðu gullmeistarar á Vetrarólympíuleikjunum með sigri yfir Kanada (silfur) og Finnlandi (brons).

Demókratar kunna ekki mannasiði og sátu spældir að venju á meðan þingmenn fögnuðu náðum árangri og áföngum ríkisstjórnarinnar í baráttu gegn glæpamennsku, ólöglegum innflytjendum, ritskoðun, atvinnuleysi m.fl. En þeir gátu samt ekki á sér setið og stóðu upp þegar þingheimur hyllti kappana í íshokkíliðinu. Al Green demókrata var vísað af fundi vegna framíkalla og truflana og sést hér á mynd fyrir utan þingsalinn með skilti sem segir að svertingjar séu ekki apar:

Ilhan Omar sem varð skyndilega stormrík á sama tíma og svindlið með sómalíufyrirtækin í Minnisota var afhjúpað kallaði mörgum sinnum fram í fyrir Bandaríkjaforseta með ásökun um að hann „dræpi Bandaríkjamenn.“ Fór hún úr sambandi, þegar Trump ásakaði demókrata um að standa í vegi fyrir verndun Bandaríkjamanna. Trump benti á Demókrata og sagði þá brjálaða:

„[Demókratar] hindra brottvísun [ólöglegra eiturlyfjabaróna og nauðgara] úr landi okkar og þið ættuð að skammast ykkar!“

Bandaríkin eru að endurheimta sig úr vók-svefninum og verðleikar fólks í störfum án tilliti til litarháttar, kyns eða þjóðernis eru aftur komnir í fyrsta sætið. Trump sagði:

„Á síðustu sex vikum hef ég undirritað næstum 100 tilskipanir og framkvæmt meira en 400 aðgerðir – sem er met – til að endurvekja heilbrigða skynsemi, öryggi, bjartsýni og velferð um allt okkar dásamlega landi.

Trump benti á demókratana í sætum fyrir framan hann og sagði það hryggilegt, hversu þvermóðskufullir þeir eru sem ekki geta tekið þátt í að gleðjast með þjóðinni, þegar góð störf eru unnin:

„Svo þið Demókratar sem sitjið fyrir framan mig, bara þetta eina kvöld, hvers vegna ekki að fagna með okkur svona mörgum ótrúlegum sigrum fyrir Bandaríkin, fyrir hag þjóðar okkar?“

Síðar í ræðunni sagði Trump:

„Þegar ég tók við embætti setti ég tafarlausa stöðvun á öllum ráðningum hjá alríkisstjórninni, stöðvun á öllum nýjum alríkisreglugerðum og stöðvun á allri erlendri aðstoð. Ég hætti við þessa fáránlegu grænu nýju svikamyllu. Ég dró okkur úr hinu ósanngjarna Parísarsamkomulagi um loftslagsmál, sem kostaði okkur trilljónir dollara sem önnur lönd voru ekki að borga. Ég dró okkur úr hinnu spilltu Alþjóðaheilbrigðismálastofnun og einnig úr and-bandarísku mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Við afléttum öllum umhverfishömlum Bidens sem gerðu landið okkar miklu óöruggara og algjörlega óviðráðanlegt. Og mikilvægast er að við afléttum brjálæðislegri rafmagnsbílaskyldu síðustu stjórnar og björguðum þannig bílaverkamönnum okkar og fyrirtækjum frá efnahagslegri tortímingu.

Alla ræðuna má lesa á ensku hér
Að neðan er myndskeið sem sýnir alla ríkisræðu Donald Trumps á Bandaríkjaþingi i nótt.