Þetta kemur ekki frá spilltu og óheiðarlegu fjölmiðlafólki
Könnunarfyrirtækið Rasmussen birtir niðurstöður skoðanakönnunar um rafrænar kjörvélar sem notaðar eru í bandarískum kosningum um allt land. Niðurstöðurnar eru í samræmi við það sem fyrirtækið hefur áður tekið saman eftir kosningarnar 2020.
Næstum tveir þriðju hlutar Bandaríkjamanna hafa áhyggjur af því að rafrænt atkvæðakerfi geri kleift að breyta atkvæðum í gegnum nettengingu meðan á kosningum stendur.
Bandaríkjamenn eru einfaldlega hættir að hlusta á lygarnar frá vinstri vængnum. Þeir fá sannleikann hjá vefsíðum eins og Rasmussen.
Þrátt fyrir stöðugar lygar um að kosningarnar ár 2020 hafi verið „öruggustu kosningarnar sem gerðar hafa verið“ og þrátt fyrir að meginfjölmiðlar hvetji fólk til að trúi ekki því sem það sér og hunsi rökhugsun, þá láta Bandaríkjamenn ekki blekkjast.
Ár 2023 greindi Rasmussen að 62% Bandaríkjamanna trúði því, að kosningunum hafi verið stolið (svindl hafði áhrif á heildarútkomuna).

Niðurstaðan snýst jafn mikið um hvernig fólk fær fréttir og hvernig það lítur á kosningaferlið. Bandaríkjamenn vilja sannleikann og eru tilbúnir að leita að honum. Þeir leita til heimilda sem byggja upp skuldbindingu við sannleikann og halda sig þar. Þess vegna virka lygar vinstri manna ekki á tvo af hverjum þremur Bandaríkjamönnum.
Eftir kosningarnar 2020 vaknaði bandaríska þjóðin upp við martröð og mun ekki gleyma því. Sjá nánari upplýsingar í þessum bókum um kosningaþjófnaðinn 2020:

