Sænski forsætisráðherrann vill að ESB steli eignum Rússlands

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir í færslu á samfélagsmiðlum að næsta skref sem þurfi að taka gegn Rússlandi sé „að gera upptækar frystar rússneskar eignir á bankareikningum í Evrópulöndum.“ Með öðrum orðum: Stela þeim.

Donald Trump reynir að koma á friði í Úkraínu, en leiðtogar Evrópu gera allt sem þeir geta til að hindra frið. Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, skrifar á X:

„Það er í þágu Svíþjóðar að árásargirni Rússa gegn nágrannalöndum borgi sig aldrei. Annars geta önnur lönd í Evrópu mætt örlögum Úkraínu.

Að sögn Kristerssons verður að neyða Pútín að samningaborðinu:

„Viðurlög ESB og Bandaríkjanna skaða rússneska hagkerfið, en það þarf að auka þrýstinginn á Rússland. Næsta skref sem við þurfum að taka er að gera upptækar frystar rússneskar eignir sem eru á bankareikningum í Evrópulöndum. Peningana á að nota til að styrkja varnarmál Úkraínu og til að greiða fyrir tjónið sem Rússland hefur valdið Úkraínu.“

Hann lýkur færslunni með því að segja að stríðinu yrði lokið í dag „ef Rússland dregur herlið sitt til baka og lætur úkraínska landsvæðið í friði.“

Fyrir skömmu heimsótti Zelenský Svíþjóð og lét mynda sig með Ulf Kristersson á orustuþotu frá SAAB, Jas Gripen. Í sameiginlegri yfirlýsingu sagðist Zelenský vilja kaupa 100 – 150 þotur frá Svíþjóð. Wallenberg brosir, forsætisráðherrann ætlar að stela rússneskum eigum til að greiða fyrir flugvélarnar.

Fara efst á síðu