Það er engin ástæða til að bólusetja gegn Covid. Kórónuveiran er ekki svo hættuleg. Það segir sérfræðingurinn og yfirlæknirinn Ute Krüger í vísindaþætti Swebbtv (sjá þáttinn að neðan). Hún segir að allt sé pólitísk ákvörðun, það eru alls engin vísindi á bak við kórónuveiruna. „Sprauturnar eru hættulegar.“
Mikael Willgert, Swebbtv, ræðir við Ute Krüger, sérfræðing í meinafræði. Þau ræða meðal annars um krabbamein, Covid og svo kölluð bóluefni. Enn er fullyrt að Covid sé á ferðinni og sagt að það sé „mikilvægt“ að bólusetja sig. Ute Krüger segir í Swebbtv:
„Þannig að nákvæmlega það sama er á ferðinni. Ég skil ekki neitt. Fólk verður hrætt. Og svo hugsar það ekki lengur sjálft, það gerir bara það sem því er sagt. Líkur á að deyja úr kórónuveirunni eru 0,1 prósent. Það eru minni líkur á að deyja úr kórónuveirunni en úr flensu. En allir fengu ekki sprautu gegn flensu. Og við erum mörg sem erum á lífi.“
Mikael Willgert minnist á þegar Swebbtv tók þátt í sýningu fyrir aldraða í Stokkhólmi:
„Mitt á milli sýningabásanna var rúta, þar sem fólk fékk ókeypis bólusetningu með þessum bóluefnum. Þetta getur komið manni að óvörum en svo hugsar maður að það sé best segja já við þessu.“
Engin ástæða að bólusetja sig gegn kórónuveirunni
Samkvæmt Krüger er engin ástæða til að bólusetja gegn kórónuveirunni.
„Fyrir mér er ljóst að það er engin þörf á að bólusetja sig gegn kórónuveirunni. Í fyrsta lagi er kórónuveiran ekki svo hættuleg. Og þetta vissu vísindamenn. En stjórnmálamenn sögðu eitthvað annað við almenning, að kórónuveiran væri mjög hættuleg, að útgöngubann og bólusetningarherferð væru nauðsynleg.
Allt var pólitísk ákvörðun, það eru engin vísindi á bak við kórónuveiruna. Þess vegna skil ég ekki af hverju fólk er enn að hlusta á þetta. Allt er á borðinu, það er hægt að lesa um þetta allt.“
Mikael Willgert staðfestir:
„Þú undirstrikar sem sagt að kórónaveiran sé ekki eins hættuleg og sagt var. Aðgerðirnar voru tilgangslausar, sprauturnar voru einfaldlega ekki nauðsynlegar.“
Ute Krüger leggur áherslu á að „sprauturnar eru hættulegar.“ Hún sýnir skýringarmynd frá Kanada sem sýnir að dánartíðnin jókst gríðarlega eftir bólusetningarnar:
„Þetta kallast Covid-19 sem kom árið 2019. Og árið 2020 var engin umfram dánartíðni. En það byrjar hér, eftir bólusetningarnar. Það segir líka í gögnunum að þær hjálpi ekki gegn sjúkdómnum. Þess vegna velti ég fyrir mér, hvers vegna á að vera að sprauta fólk með þessu?“
Sjá má þáttinn sem er á sænsku hér að neðan:
