Indverskar konur mótmæla kynferðisafbrotum

Þorgeir Eyjólfsson skrifar á blog.is um ískyggilega þróun ofbeldis á Íslandi og ræðir um meira en tvöföldun nauðgunarmála frá 2008 – 2023. Á sama tíma sýnir skýrsla OECD að hlutfall innflytjenda á Íslandi er næst mest allra ríkja innan OECD (sjá graf að neðan).
Þorgeir Eyjólfsson skrifar:
Nauðgunum fjölgar um 111% á Íslandi
Ísland var með fjórðu hæstu tíðni nauðgana í Evrópu á hverja 100 þúsund íbúa 2023 samkvæmt gagnagrunni Evrópsku hagfræðistofnunarinnar (Eurostat) og hefur tilkynntum nauðgunum á Íslandi fjölgað um 111% frá 2008. Fjölmiðlar telja ekki fréttnæmt að nauðgun eigi sér stað annan hvern dag, árið um kring, á Íslandi og ekki verður vart viðvarana af hálfu lögreglu um að kvenþjóðin hafi á sér andvara á ferðum sínum.

Furðu vekur að umhyggja borgarstjóra fyrir kynsystrum skuli ekki meiri en svo að látið er ógert að skipta út ónýtum perum ljósastaura innan borgarmarka. Með aðgerðarleysi stuðlar borgin að kjöraðstæðum í skammdeginu fyrir nauðgara til að athafna sig.
Höfundur er eftirlaunaþegi
Hér að neðan má sjá lista yfir innflytjendur OECD ríkja 2024:

