Bandaríkin segja viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi hafa mistekist

Fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Scott Bessent, er ekki hrifinn af nítjánda viðskiptaþvingunarpakka ESB, því „ef þú þarft að gera eitthvað NÍTJÁN sinnum, þá hefur þér mistekist.

Fjármálaráðherra Bandaríkjanna segir í viðtali við NBC Meet the Press að viðskiptaþvinganir ESB gegn Rússlandi hafa mistekist. Hann segir:

„Það má draga þá ályktun, af því að þeir hafa þurft að kynna heila nítján viðskiptaþvingunarpakka. Evrópubúar segja mér að þeir séu að kynna sinn nítjánda viðskiptaþvingunarpakka. Að mínu mati, ef þú þarft að gera eitthvað nítján sinnum, þá hefur þér mistekist.“

Fara efst á síðu