Norskur mjólkurrisi stöðvar Bovaer eftir að kýrnar veikjast og deyja

Stærsti mjólkurkaupandi Noregs hættir tímabundið notkun fóðurbætiefnisins Bovaer, sem á að fá kýr til að prumpa og ropa minna og þannig bjarga loftslaginu. Ákvörðunin kemur eftir að ​​viðvaranir bárust frá Danmörku um veikar og dauðar kýr, að sögn fréttastofunnar ANP.

Norske Melkeråvare gerir hlé á notkun loftslagsefnisins, sem hollensk-svissneska fyrirtækið DSM-Firmenich þróaði.

Mjólkurrisinn lýsir stöðvuninni sem varúðarráðstöfun eftir að fréttir frá Danmörku bárust um að kýr veiktust eftir að hafa fengið Bovaer. Meðal annars fengu kýrnar hita, frjósemin minnkaði og drápust í kjölfarið.

Bovaer er samþykkt af Matvælaöryggisstofnun ESB, EFSA, sem fóðurbætiefni sem er talið geta dregið úr metanlosun búfjár um tugi prósenta. Bætiefnið hefur verið nefnt sem leið fyrir landbúnað til að minnka losun gróðurhúsalofttegundarinnar metan og bjarga loftslaginu.

Norske Melkeråvare leggur áherslu á að það hafi enn ekki séð neinar skýrslur um neikvæð áhrif í Noregi. Jafnframt segir að það hafi „ákveðið að gera hlé á meðan við öflum meiri þekkingar.“

DSM-Firmenich segir að Bovaer hafi verið prófað og að engin vandamál hafi komið upp nema í Danmörku fram að þessu. Það er hins vegar ekki rétt, því í Svíþjóð hefur síðasta Bovaer verkefninu verið hætt, þegar að Norrmejerier mjólkursamsalan hætti sölu á „loftslagsmjólkinni Norrlogisk.”

Mjólkursamsalan Arla hefur einnig hætt tilraunum sínum með loftslagsfóðurefnið í Bretlandi. Lítur út fyrir að tilraunir með prumpandi og ropandi beljur sé í frjálsu falli….

Fara efst á síðu