Sænska sjónvarpið ritskoðar Andrés önd

Á hverjum jólum, aðfangadag, þá hefjast jólin í sænska sjónvarpinu á sýningu Disney: Andrés önd og félagar, Mjallhvít og fleiri. Þetta hefur verið heilagur þáttur á aðfangadag fyrir alla fjölskylduna og vinsælasti þáttur sjónvarpsins jafnt og þétt. Á hverju ári eru umræður um breytingar og núna gerir grínblaðið Svenskbladet grín að því að reglugerð ESB um falska markaðsfærslu komi í veg fyrir að sýna megi senuna þegar einn jólaálfurinn málar skákborð í skáklitum, svartir og hvítir reitir koma úr penslinum með skákmálningu jólasveinsins. Sagt er að SVT ritskoði atriðið í ár enda fæst þessi hentuga og afkastamikla málning hvergi í neinum búðum. Jólasveinninn kann ýmis ráð enda heimsækir hann öll börnin fyrir jólin og gjafirnar þurfa að vera tilbúnar í tæka tíð.

Grínblaðið Svenskbladet fullyrðir að sænska sjónvarpið fjarlægi þessa senu í vinsælasta þætti sjónvarpsins á aðfangadag, klukkutíma þátt með Andrés önd og félögum. Hluti þáttarins sýnir jólagjafaframleiðslu í verksmiðju jólasveinsins og þar sést hvar einn jólaálfurinn málar skákborð með einni málningu, skákmálningu jólasveinsins. Úr penslinum sameinast og aðskiljast bæði svartir og hvítir reitir á dásamlegan hátt og vildu margir að sjálfsögðu geta keypt slíka málningu. En það er nú þannig með skáldskap og sköpunargleði að ýmislegt er leyft sem ekki tilheyrir hinum gráa hversdagsleika. Og það er það sem er einmitt málið. Munið eftir stúlkunni með eldspýturnar sem sá myndir í loganum?

Grínblaðið Svenskbladet skrifar:

„Vinsæli þátturinn „Andrés önd og vinir hans halda jól“ hefur tekið breytingum í ár. Atriðið á verkstæði jólasveinsins þar sem álfur málar skákborð með skákreitamálningu hefur verið klippt út, eftir að ESB samþykkti tilskipun til að koma í veg fyrir ranga eða villandi markaðssetningu.“

Blaðið segir að það samræmist einfaldlega ekki gildandi löggjöf ESB um bann við falskri markaðsfærslu að sýna slíka töframálningu.

Starfsmenn sænska sjónvarpsins hafa áður reynt að hræra í jólaþættinum samanber grein í Femína um ritskoðun SVT en eitt árið var senan um nautið Ferdinand sem lyktar af blómum í stað þess að slást við nautabanann á leikvanginum klippt út og Ljóti andarunginn settur í staðinn. Svíar risu upp og mótmæltu sem einn maður og sjónvarpið neyddist til að taka Ferdinand til baka. Önnur stórhættuleg atriði eins og til dæmis þegar Andrés Önd dritar úr byssu á bleika fuglinn sem eyðilagði myndatöku hans í skóginum hafa verið klippt burt. Einnig atriði í húsvagninum góða, þegar Gúffy stingur gaffli í rafmagnið og maískólfur í höndum hans fer að skjóta poppkorni í allar áttir. Slíkt hryllingsatriði má að sjálfsögðu ekki sjást fyrir börn undir 18 ára svo enginn fari að prófa þetta heima.

Fréttaritari sem býr í Svíþjóð mun með eftirvæntingu horfa á þáttinn á aðfangadag. Sé það rétt að atriðið með skákmálningunni hafi verið klippt burt, þá verður spennandi að fylgjast með viðbrögðunum.

Ein af „hryllingssenum“ sem SVT hefur fjarlægt í hinum sívinsæla jólaþætti sænska sjónvarpsins.

Fara efst á síðu