Umferðin stöðvaðist í Brussel í dag vegna bændauppreisnarinnar. Bændur mættu alls staðar að úr aðildarríkjunum til að mótmæla nýjum viðskiptasamningi ESB við lönd í Suður-Ameríku sem átti að samþykkja á fundi leiðtogaráðs ESB í dag.
Bændurnir söfnuðust saman klukkan níu í morgun. Hundruð dráttarvéla lokuðu götum Brussel í mótmælaskyni gegn samkomulaginu, sem þeir segja að muni eyðileggja lífsviðurværi þeirra. Búist var við að allt að 10.000 bændur hfðu komið til Brussel til að taka þátt í mótmælunum.
Bændur köstuðu kartöflum og eggjum í lögreglu, skutu upp flugeldum og lokuðu umferð. Yfirvöld svöruðu með táragasi og vatnsbyssum, settu upp vegatálma og lokuðu göngum umhverfis borgina. Á traktor var skilti sem á stóð:
„Hvers vegna að flytja inn sykur frá hinum enda jarðarinnar þegar við framleiðum það besta hér?“
Belgíski mjólkurbóndinn Maxime Mabille ásakar Ursulu von der Leyen fyrir að þvinga í gegn nauðungarsamningi eins og að ESB væri orðið að einræðisríki. „Við erum hérna til að segja nei við Mercosur – samningnum.“
Ódýrari og lélegri matvæli
Bændur óttast að Evrópa ódýrari suður-amerísk matvæli eins og nautakjöt, sykur, hrísgrjón, hunang og sojabaunir flæði inn á sameiginlega markað ESB frá suður-amerískum samkeppnisaðilum sem fylgja allt öðrum og vægari reglum en bændur þurfa að gera innan ESB. Þá er sérstaklega bent á skordýraeitur sem er bannað í ESB.
Fyrir mótmælin lokaði lögreglan nokkrum vegum fyrir umferð. Búist er við truflunum á götum í kringum ESB-hverfið að minnsta kosti fram eftir degi. Almenningssamgöngur í Brussel hafa einnig orðið fyrir áhrifum yfir daginn. Florian Poncelet frá belgíska landbúnaðarsambandinu FJA sagði:
„Við höfum mótmælt síðan 2024 í Frakklandi, Belgíu og annars staðar. Við viljum að loksins verði hlustað á okkur.“
Andstaða Frakka og Ítala
Meðal ESB-ríkja eru Frakkland og Ítalía leiðandi í andstöðunni gegn samningnum og Emmanuel Macron forseti segir að ekki sé hægt að undirrita samninginn í núverandi mynd. Frakkland hefur gengið saman við Pólland, Belgíu, Austurríki og Írland til að knýja fram frestun, sem gefur gagnrýnendum nægilega mörg atkvæði í Evrópuráðinu til að hugsanlega koma í veg fyrir samninginn.
Hins vegar þrýsta Þýskaland og Spánn hart á um samþykki. Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, varar við því að taka verði ákvörðun núna ef ESB vill „halda áfram trúverðugleika sínum í alþjóðlegum viðskiptum.“ Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, fullyrðir að samningurinn muni veita Evrópu „alþjóðlegt vægi“ gegn andstæðingum.
Stærsta fríverslunarsvæði heims
Tekið hefur 25 ár að forma samninginn sem mun skapa stærsta fríverslunarsvæði heims með 780 milljónum íbúa og fjórðung af vergri landsframleiðslu (VLF) heimsins.
Ursula von der Leyen segist staðráðin í að ferðast til Brasilíu um helgina til að undirrita samninginn, en hún þarf stuðning að minnsta kosti tveggja þriðju hluta ESB-ríkjanna.
Leiðtogafundi ESB lýkur á morgun föstudag.
BRUSSEL
