Viktor Orbán, þjóðarleiðtogi Ungverjalands segir að stjórnmálamenn og yfirstétt ESB vinni að „siðmenningarlegri umbreytingu“ í Evrópu með fjöldainnflytjendum og „alþjóðahyggju“ sem eigi að koma í stað hefðbundinna gilda (sjá X að neðan).
Í umræddri öryggisáætlun ríkisstjórnar Bandaríkjanna er talað um að Evrópa standi frammi fyrir „siðmenningarlegri tortímingu.“ Athafnamaðurinn Lars Bern segir í viðtali við Swebbtv að öryggisáætlun Trumps „bindur enda á alþjóðahyggjuna.“ Alþjóðahyggjan er útbreidd í Evrópu.
Forsætisráðherra Ungverjalands, Viktor Orbán, telur að þetta snúist frekar um umbreytingu Evrópu. Hann segir í viðtali við Patrióta:
„Ég myndi frekar segja að þetta snúist um siðmenningarlega umbreytingu. Hefðbundin kristin gildi eru að hverfa, þau eru jafnvel rekin út úr stjórnmálum og í staðinn kemur frjálslynt hugarfar alþjóðahyggjunnar.
Núverandi yfirstétt styður fjöldainnflutninginn á virkan hátt og öllu sem því fylgir. Það leiðir Evrópu í átt að algjörri siðmenningarlegri umbreytingu.“
„Bandaríska skýrslan er mikilvæg vegna þess að hún sýnir að við höfum ekki verið að segja neina vitleysu. Við höfum sagt þetta í 15 ár, að minnsta kosti síðan flóttamannakreppan skall á árið 2015. Núna er ljóst að það sem við og nokkur önnur Mið-Evrópulönd höfum sagt er ekki skoðun neinna heimskulegra leiðtoga sem skilja ekki raunveruleikann, heldur er þetta sjálfur raunveruleikinn. Stórveldi með mikla vitsmunalega getu, eins og Bandaríkin, metur stöðuna á sama hátt og við. Þá er kannski eitthvað til í þessu.“
