Ríkisstjórnin er rýtingur í hjarta þess fátæka

Eftir 22 ár í hjálparstarfi fyrir fátæka neyðist Ásgerður Jóna Flosadóttir, stofnandi Fjölskylduhjálpar Íslands til að loka starfseminni. Þetta er sorglegra en nokkur tár fá bætt og ekki lifa fátækir á tárum einum saman. 

Hræsni Ingu Sæland og hinna valkyrjanna í málefnum þeirra fátæku sem ekki hafa efni á mat á borðið fyrir börnin sín, er ekkert annað en rýtingur í hjarta þeirra sem minna mega sín. Nægir peningar eru til til að styrkja starfsemina eins og Inga Sæland var búin að lofa en sveik að sjálfsögðu enda eru svik við gefin loforð það sem hún og ríkisstjórnin kunna best. Varalitur og andlitsmeik valkyrjanna er mikilvægara en mjólkurglas þess fátæka. Ferðalög og myndir með fræga fólkinu betri fjárfesting en atvinnuuppbygging og velferð landsmanna.

Fjöldamargir góðhjartaðir einstaklingar, kaupmenn matvörubúða og aðrir hafa stutt Fjölskylduhjálpina með matar- og peningagjöfum. Verða þeir aflögufærir þegar allir nýju skattar ríkisstjórnar Kristrúnu Frostadóttur slá í gegn eftir áramótin og halarófa af nýjum sköttum eftir það?

Eina markmið Kristrúnar er að frysta frelsi viðskiptalífsins með álögum og sviksamlegum reglugerðum, einungis ríkið á að stjórna og allt á að verða ríkisbúskapur. Kristrún vill vera drottinn íslenska ríkisins og fá gæðastimpil ESB á ennið fyrir vel unnin landstjórastörf á Íslandi.

Síðar mun ríkisstjórn valkyrjanna neyðast til að stofna Fjölskylduhjálp ríkisins, þegar búið verður að gera alla landsmenn að fátæklingum. Þá verður nú aldeilis gaman í stjórnarráðinu þegar hægt verður að ráða því hverjir fá að lifa og hverjir deyja með skömmtunarmiðum sem ríkið deilir út.

Og fjallkonan? Fær fjallkonan að tala á 17. júní? Hvort svo sem forsetinn er með fullum mjalla af því að hann heitir Halla, þá kannske heldur hann að hann skili til baka einhverju af yfirfjárdrætti við breytingar á Bessastöðum með því að þykjast vera fjallkona þann sautjánda.

Það verður nú meiri sparnaðurinn.

Fara efst á síðu