Loksins leitarvél sem ekki felur sannleikann

Netrisarnir starfa ekki í þágu sannleikans. Þú hefur kannski rekið þig á, þegar þú leitar á Google, að þá færðu oft margar síður með greinum meginfjölmiðla og þarft að leita í gegnum afvegaleiðandi hlekki áður en þú finnur upplýsingarnar sem þú leitar að á tíundu leitarsíðunni.

Netrisarnir eru ekki bara að fela leitarniðurstöður, þeir eru að fela spillinguna. Þeir halda að þú getir ekki meðhöndlað óritskoðaðan sannleika.

Þess vegna hönnuðum við Freespoke

Á heimasíðu fyrirtækisins má lesa um ástæðuna fyrir hönnun nýju leitarvélarinnar. Freespoke telur að fólk eigi skilið að fá óritskoðuð svör við spurningum sínum í stað matreiddra heimilda. Leitanir á ekki að takmarka viðhorf leitandans. Fréttir eiga ekki að leiða þig inn í bergmálshelli. Og gervigreindin á ekki að ákveða á bak við tjöldin hvaða upplýsingar þér verður leyft að sjá.

Með spilanlegum hlaðvarpsbrotum beint í leitarniðurstöðum kemstu fram hjá hliðvörðum fjölmiðla og heyrir sundurliðun umdeildra efna beint frá óháðum röddum. Engar síur. Engar „staðreyndakannanir.“ Bara hrár, óritskoðaður sannleikur.

Með Explore Perspectives færðu yfirlit yfir hylmingarferlið: sérð samstarf meginmiðla og færð andstæðar og mikilvægar upplýsingar frá óhefðbundnum og óháðum miðlum. Þannig sérð þú spillinguna í fjölmiðlum og færð nöfnin á þeim sem þeir vilja ekki að þú þekkir.

Smelltu hér til að skoða Freespoke í dag

Fara efst á síðu