Þrátt fyrir hert innflytjendalög streyma innflytjendur enn áfram til Svíþjóðar og þúsundir manna verða sænskir ríkisborgarar á hverju ári. Það hefur aðeins tekið nokkra áratugi fyrir Svíþjóð að breytast í fjölmenningarríki. Samkvæmt nýrri Inngildingarskýrslu gengur ekkert sérstaklegal vel að aðlaga innflytjendur eða eins og kallað er inngilda þá í samfélagið. Ofbeldisglæpir, nauðganir, skot- og sprengjuárásir kasta dökkum skugga yfir þá sem eru duglegir og gera allt til að aðlagast.
Sænska Þekkingarstofnunin Kunskapsverket skilgreinir félagsmál með það að markmiði að leggja sitt af mörkum til veruleikatengdrar opinberrar umræðu og birtir niðurstöðurnar í skýrslum. Stofnunin er óháð og fjármögnuð með framlögum en tekur ekki við gjöfum frá ríki, sveitarfélögum, stjórnmálaflokkum eða hagsmunasamtökum.
Nýjasta skýrslan (sjá pdf að neðan) fjallar um hinn sífellt fyrirferðameiri málaflokk: innflytjendur og aðlögun frá árinu 2016 og síðar. Fyrir tíu árum breytti Svíþjóð um stefnu í innflytjendamálum með því meðal annars að innleiða hert landamæraeftirlit og taka upp tímabundin dvalarleyfi í stað varanlegra dvalarleyfa.
Í dag eru næstum 30% íbúanna eða um þrjár milljónir manns fæddir erlendis eða eiga tvo foreldra sem eru fæddir erlendis. Greiningin beinist að þeim sem fæddir eru erlendis, sem eru um 2,2 milljónir manna eða 21%. Árið 2005 var þessi hópur helmingi minni.
Hópurinn er að meðaltali yngri en þeir sem fæddir eru í Svíþjóð og flestir búa í og við stórborgir. Helmingurinn hefur flutt til Svíþjóðar frá dæmigerðum flóttamannalöndum. Fimm stærstu löndin eru Sýrland, Írak, Íran, Sómalía og Afganistan.
Eftir 2005 hefur hópurinn fæddir erlendis frá flóttamannalöndum stækkað upp í 650.000 manns, sem er aukning um rétt rúm 130%. Það þýðir að rúmlega helmingur hópsins hefur komið til Svíþjóðar á síðustu 20 árum.

Dvelja lengur
Stóri munurinn á hælisleitendum til Svíþjóðar og öðrum er sá að hælisleitendur dvelja lengur að meðaltali. Átta af hverjum tíu hælisleitendum sem hafa komið eftir 2005 eru enn áfram en helmingur fólks í vinnuleit hefur flutt aftur út. Flóttafólkið hefur þannig áhrif á samsetningu íbúafjöldans litið til lengri tíma.
Á síðustu 20 árum hafa fleiri flutt inn frá löndum sem eru landfræðilega, efnahagslega, stjórnmálalega og menningarlega fjær Svíþjóð. Árið 2005 voru tvö stærstu upprunalöndin Finnland og fyrrum Júgóslavía – í dag hafa Sýrland og Írak tekið við.
Samkvæmt skýrslunni hefur munurinn á innfæddum og erlendum minnkað á undanförnum árum. Samtímis stækkar hópurinn sem getur ekki séð fyrir sér sjálfur.
33% geta ekki séð fyrir sér
Af þeim sem fæddir eru erlendis eru 1,7 milljónir á aldrinum 20 – 66 ára og þannig á vinnualdri. Meðal innfæddra karla og kvenna á vinnualdri eru um 84% í vinnu, meðal erlendra fæddra 70%. 85% innfæddra sjá um sig sjálfir samanborið við 67% þeirra sem eru fæddir erlendis.
33% erlendra fæddra eru því ekki sjálfbjarga og meðal þeirra sem hafa komið til Svíþjóðar eftir 2005 er hlutfallið enn hærra: 37%. 2,3% innfæddra leita sér að vinnu en 8,9% þeirra sem fæddir eru erlendis. Af þeim 146.000 sem fæddir eru erlendis og á atvinnuleysisbótum koma átta af hverjum tíu frá flóttamannalöndum.

Einföld störf
Margir sem fæddir eru erlendis vinna störf sem krefjast ekki háskólamenntunar. Einn af fjórum einstaklingum sem fæddir eru erlendis og hafa atvinnu starfar hjá sveitar- og lénsstjórnum.
Á árunum 2005 – 2023 hefur fjöldi erlendra fæddra einstaklinga sem eru atvinnulausir aukist úr rúmlega 300.000 í næstum 500.000. Tvær hindranir sem bent er á eru skortur á viðeigandi menntun og léleg sænskukunnátta. Einn af hverjum fjórum vinnuveitendum nefnir ófullnægjandi sænskukunnáttu sem vandamál við ráðningar.
Fáir klára sænsku fyrir innflytjendur
Talið er að 560.000 manns af þeim sem eru á vinnufærum aldri og fæddir erlendis skorti nægilega lestrarkunnáttu í sænsku til að geta tekið verið gjaldgengir á vinnumarkaðinum. Þetta er fjölgun um það bil 100.000 manns á tíu árum.
Á sama tíma ljúka fáir SFI-menntun. Á árunum 2017-2023 hófu 384.000 nemendur nám í sænsku sem erlendu tungumáli (SFI) en á sama tímabili lauk aðeins þriðjungur færri lokastigi sem á að samsvara virkni í sænsku.

Skýrslan á sænsku hér að neðan:
