Alexandre Rocha og Elon Musk
Fólk er hneykslað viða um heim yfir mannréttindabroti íslenskra dómstóla á Alexandre Rocha, föður 10 ára drengs, sem tekinn var frá föður sínum vegna þess að faðirinn vildi bíða með ákvörðun um kynskipti á drengnum, þar til barnið yrði fullorðið. Þjóðólfur hefur fengið fyrirspurnir frá Brasilíu og Portúgal og beðinn um að staðfesta að fréttin um limlestingaráætlun móðurinnar og íslenskra yfirvalda á drengnum sé sönn. Málið er svo svakalegt að jafnvel Elon Musk kommenterar það með þessum sorglegu orðum:
„Vókvírusinn nær jafnvel til Íslands.“

Padeira de Aljubarrota skrifar á X:
„Það er hneykslanlegt hvað er að gerast á Íslandi!
Alexandre Rocha — portúgalskur að uppruna sem flutti til Frakklands og býr núna í Reykjavík… — missti forsjá yfir 11 ára syni sínum einfaldlega vegna þess að hann er á móti kynbreytingum barnsins.
Drengurinn, sem greindur var með óhefðbundna einhverfu og athyglisbrest, byrjaði að skilgreina sig sem stelpu átta ára gamall. Móðirin styður kynþroskahemla og hormónameðferð. Alexandre heldur því fram að sonur hans sé of ungur, skilji ekki afleiðingarnar og að fylgisjúkdómarnir flæki allt.
Þann 10. desember 2025 veitti dómstóll Reykjavíkur móðurinni fulla forsjá, heimilaði kvenmannsnafn og óafturkræfa læknismeðferð. Faðirinn mun fá drenginn aðra hverja helgi auk 4 vikna á sumrin.
Enginn foreldri ætti að vera refsað fyrir að vilja vernda barn sitt. Börn eru ekki hugmyndafræðilegar tilraunir!“
