Örlagatímar – Verður Ísland áfram Ísland?

Baldur Borgþórsson einn af leiðtogum grasrótarhreyfingarinnar Þvert á flokka segir frá starfsemi hreyfingarinnar og framboði til stjórnar Reykjavíkurborgar í sveitarstjórnarkosningunum næsta vor. OKKAR BORG – ÞVERT Á FLOKKA  vill endurheimta stjórn borgarinnar og skila í hendur Reykvíkinga sjálfra. Dagur B. Eggertsson og fylgislið hans skilja eftir sig dökka mynd í málefnum Reykvíkinga og þar er ekki aðeins verið að tala um peningasukkið og gríðarlegar skuldir Reykvíkinga.

Baldur Borgþórsson gagnrýnir fyrrum flokka sem hann var meðlimur í, Miðflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn, fyrir fátæk svör um kall við aðstoð að laga hælisleitendamálin en hvorugur flokkanna sýndi þá lágmarks kurteisi að svara talsmönnum hreyfingarinnar Þvert á flokka.

Baldur greinir frá sex punktum úr stefnuskrá hreyfingarinnar fyrir Reykvíkinga sem eru fyrstu brýnustu aðgerðir sem gera þarf til að snúa órum fyrri stjórna við sem þvinga bílastæðislausum íbúðum upp á fólk í von um að fá fallegri tölur fyrir Borgarlínuna sem er glatað verkefni frá byrjun.

Á myndina vantar 6. punktinn sem fjallar um að segja lausum öllum samningum við Samtökin 78. Meirihluti Reykvíkinga vilja ekki að verið sé að troða kynfræðum upp á börn frá leikskólaaldri eða að borgin ákveði hverjir megi koma í barnaafmælið. Þeir sem vilja fá slíka þjónustu geta keypt hana sjálfir beint af S 78.

Það er mikil skömm fyrir flokka eins og Miðflokkinn sem allt í einu þykist saklaus af Parísarsamkomulaginu og hælisleitendasamkomulaginu eða þá Sjálfstæðisflokkinn sem hefur haft innflytjendamálin á sinni könnu um áratuga bil.

Þessir flokkar verða að taka umræðuna um eigin ábyrgð, ef ekki þá verður þjóðin að bregðast við með nýjum flokkum á þing og þá væntanlega með nýjum forseta Alþingis sem ekki talar niður þingið sem „djöfulsins, helvítis pakk.”

Viðtalið er hér að neðan:

Fara efst á síðu