Vandræði fólksins með alla fínu ráðherratitlana hafa bókstaflega sprungið út. Ekki bara í miðstjórn ESB í Brussel heldur einnig á Íslandi og í ESB-ríkinu Svíþjóð. Trump hinn ógurlegi sem horfir á Grænland gegnum glugga Hvíta hússins í Washington virðist hafa skapað skjálftahrinu hjá ESB sem ekki sér enn fyrir endanum á. Á varnarmálaráðstefnu nýverið í Svíþjóð hélt formaður Kristdemókrata Ebba Busch, sem jafnframt er iðnaðar-, viðskipta- og orkumálaráðherra Svíþjóðar, því fram að eftir að Trump hefði hertekið Grænland kæmi röðin næst að Svíþjóð, sem er ríkt af eftirsóttum málmum og járnvinnslu.
Ebba Busch segir á blaðamannafundi, að námustarfsemi í Svíþjóð fái allt aðra þyngd eftir Grænlandsútspil Bandaríkjaforseta og verði héðan í frá hluti af varnaröryggismálum Svíþjóðar. Hún ber saman Svíþjóð og Grænland:
„Við höfum í grundvallaratriðum sama málmríka berggrunninn og Grænland.“

Hún varar við því að ef Kína notar einokun sína á ýmsum málmtegundum sem vopn gegn Evrópu gætu afleiðingarnar orðið alvarlegar. Sem svar við beinni spurningu frá Dagens Industri, hvort aukinn áhugi Bandaríkjanna á steinefnum Grænlands hafi aukið hættuna á að Bandaríkin muni einnig gera tilkall til sænskra eigna svarar Busch:
„Já. Þess vegna verðum við að ákveða hvernig við stjórnum þeim sjálf. Ég vil að það verði erfitt að komast fram hjá Svíþjóð og erfiðara fyrir leiðtoga eins og bæði Donald Trump og Xi Jinping að ná tökum á Svíþjóð.“
Hún vill því að Svíþjóð stjórni auðlindum sínum sjálfstætt til að hindra ásælni erlendra ríkja. Til að mæta ógnunum þarf að hraða leyfisferli fyrir nýjar námur, telur Busch. Ríkisstjórnin hyggst leggja fram stefnu um námuvinnslu í vor, með áherslu á að styrkja framboðsöryggi og sjálfstæði Svíþjóðar. Stefna sem Busch segir að verði í „róttækari vegna öryggisástandsins.“ Hún segir:
„Við þurfum að hugsa á róttækan hátt, vegna þess að Bandaríkin eru núna að fara inn í einstök lönd og segjast ætla að kaupa allt.“
